Hoppa yfir valmynd
18. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Ísland stofnmeðlimur samnorrænnar gervigreindarmiðstöðvar

Norræna ráðherranefndin hefur samþykkt að verja 30 milljónum danskra króna til þriggja ára, um 575 milljónum íslenskra króna, í að koma á fót norrænni gervigreindarmiðstöð. Samtök frá öllum Norðurlöndunum taka þátt í stofnun miðstöðvarinnar sem verður formlega ýtt úr vör í október næstkomandi. 

AI Sweden, AI Finland, Digital Dogme frá Danmörku, IKT Norge og Almannarómur stóðu að umsókn um stofnun miðstöðvarinnar, sem Norræna ráðherranefndin samþykkti eins og fyrr segir. Miðstöðin verður með starfsstöðvar og starfsfólk á öllum Norðurlöndunum en miðlæga skrifstofu í Svíþjóð. Í fyllingu tímans er þess vænst að Eystrasaltsríkin fái aðild að miðstöðinni.

Almannarómur fer með framkvæmd máltækniáætlunar íslenskra stjórnvalda og verður fulltrúi Íslands í gervigreindarmiðstöðinni. Almannarómur mun leggja til ígildi eins stöðugildis til verkefna miðstöðvarinnar en fær á móti framlag frá miðstöðinni sem samsvarar öðru stöðugildi.  Áhersla er lögð á að verkefnin sem þessi stöðugildi vinna að verði nátengd innlendum hagsmunum og stuðli að því að styrkja málaflokk gervigreindar á Íslandi.

Vonir standa til að gervigreindarmiðstöðin mun flýta fyrir upptöku gervigreindar og nýsköpunar á Norðurlöndunum. Miðstöðin verður vettvangur þar sem háskólasamfélag, opinberi geirinn og atvinnulífið vinna saman að því að deila þekkingu, samræma aðgerðir og efla getu til að nýta gervigreind í þágu samfélagsins. Með þessu er stefnt að því að örva nýsköpun og styðja við þróun lausna sem skila auknu virði og ávinningi fyrir samfélagið. Þar sem gervigreindarumhverfið er ólíkt milli samstarfsþjóðanna mun miðstöðin verða sveigjanleg og starfa sem viðbót við þá starfsemi sem fyrir er.

Á fyrstu þremur starfsárum verða áherslur miðstöðvarinnar eftirfarandi:

  • Efla innlenda hagsmunaaðila á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum í því  að byggja upp og hrinda af stað innleiðingu gervigreindar á fjölbreyttum sviðum.
  • Veita öflugan stuðning við opinbera stefnumótun og samhæfingu, með sameiginlegri framtíðarsýn fyrir svæðið, m.a. svo löndin geti haft áhrif á stefnu Evrópusambandsins um helstu álitaefni sem varða gervigreind.
  • Koma á fót, fjármagna og styðja við samstarf einkaaðila og opinberra aðila víðs vegar á Norðurlöndum til að leysa sameiginlegar viðskiptalegar og samfélagslegar áskoranir.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, segir stofnun gervigreindarmiðstöðvarinnar spennandi tímamót. Hún sé í anda þess sem rætt var á fundi samstarfsráðherra í Helsinki á dögunum: að Norðurlöndin verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims. Þar leiki gervigreindin lykilhlutverk og Norðurlöndin geti markað sér sérstöðu með ábyrgri notkun tækninnar. 

„Ég hef fulla trú á að gervigreindarmiðstöðin muni auka slagkraft Norðurlanda á þessu sviði. Að sama skapi tel ég að þarna séu mörg tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir og vísindamenn – en samkeppnishæfni Íslands og lífsgæði hér á landi til framtíðar munu ráðast af því hversu vel okkur mun takast til í þessum efnum. Það er því virkilega ánægjulegt að hafa haft aðkomu að stofnun fyrstu samnorrænu gervigreindarmiðstöðvarinnar,“ segir Logi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta