Samkomulag við Noreg um samstarf um tengilið við Evrópsku vinnumálastofnunina
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gert samkomulag við vinnumálaráðuneyti Noregs um samstarf um aðgang að þjónustu norsks tengiliðar við Evrópsku vinnumálastofnunina (ELA) sem starfar í Bratislava, Slóvakíu. Samkomulagið tryggir Íslandi aðgang að sérfræðiþekkingu og upplýsingamiðlun á vettvangi ELA.
Samkvæmt samkomulaginu mun norski tengiliðurinn sinna verkefnum fyrir Íslands hönd og fela þau meðal annars í sér samskipti við ELA, stuðning við eftirlitsverkefni og upplýsingamiðlun milli stofnana.
Samstarfinu er ætlað að efla tengsl Íslands við Evrópsku vinnumálastofnunina og stuðla að markvissari samhæfingu og upplýsingaflæði í málefnum sem varða réttindi og skyldur á vinnumarkaði Evrópu.