Hoppa yfir valmynd
18. júní 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Tillögur starfshóps um endurbætur á þjónustu talmeinafræðinga við börn


Starfshópur skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2023 hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum og greinargerð. Hópurinn leggur til að talmeinaþjónusta við börn verði veitt á þremur stigum í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Miðað skuli að því að tryggja snemmtækan stuðning, einfaldara þjónustukerfi og að þjónustan fari sem mest fram í nærumhverfi barna.

Grunnþjónusta í heilsugæslu og hjá sveitarfélögum

Í meginatriðum er lagt til að tryggð verði þjónusta talmeinafræðinga í heilsugæslu sem sinni börnum á aldrinum 0-2 ára, m.a. í kjölfar tilvísana frá ung- og smábarnavernd. Skólaþjónusta sveitarfélaga sinni áfram grunnþjónustu við börn á leik- og grunnskólaaldri. Þjálfun, ráðgjöf og fræðsla til foreldra og starfsfólks verði lykilatriði.

Sérfræðiþjónusta í nærumhverfi barns

Dugi grunnþjónusta ekki til taki við sérfræðiþjónusta og skal sérstök áhersla lögð á að þjónustan sé veitt af viðeigandi sérfræðingum í nærumhverfi barnsins, óháð því hver beri ábyrgð á að veita þjónustuna. Þetta stuðlar að betra aðgengi að þjónustu og sem minnstri röskun í lífi barna og foreldra þeirra.

Aukin fjarþjónusta og miðlægir biðlistar

Lagt er til að fjarþjónusta verði efld. Þá verði komið á fót á miðlægum biðlista eftir þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga til að bæta yfirsýn, koma á forgangsröðun og auka gagnsæi varðandi þjónustu og veitingu hennar.

Ný námsbraut talþjálfa

Lagt er til að komið verði á fót nýrri námsbraut fyrir talþjálfa sem starfi undir leiðsögn talmeinafræðinga og sinni þjálfun barna í skólum. Þetta styður við snemmtæka íhlutun og eykur sveigjanleika þjónustunnar.

Skilyrði um tilvísun lækna verði afnumin

Hópurinn leggur til að skilyrði um tilvísun læknis fyrir þjónustu verði afnumin. Þess í stað nægi faglegt mat talmeinafræðings í grunnþjónustu til að sækja um greiðsluþátttöku fyrir sérfræðiþjónustu.

Endurskoðun ábyrgðar í samræmi við breyttar aðstæður

Ábyrgðarskipting frá árinu 2014 verði endurskoðuð m.t.t. nútímalegs lagaumhverfis og fjölbreyttra þarfa barna, sérstaklega þeirra sem hafa íslensku sem annað mál eða eru með margþættar áskoranir.

Með skýrri þjónustuskiptingu og áherslu á samþættingu og aðgengi að þjónustu í nærumhverfi barnsins er markmiðið að bæta líðan, stuðning og réttindi barna með tal- og málþroskafrávik.

Í meðfylgjandi skýrslu hópsins eru upplýsingar um skipun hans, forsögu verkefnisins ásamt tillögum og greinargerð.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta