Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög
Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga sem markaði tímamót og var undirritað þann 19. mars síðastliðinn hefur því nú verið fest í lög. Samkomulagið var gert á milli félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
„Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana og sett uppbyggingu hjúkrunarrýma í forgang. Við meinum það þegar við segjum að við tökum málefni eldra fólks alvarlega. Markmiðið er að tryggja landsmönnum áhyggjulaust ævikvöld,“ segir Inga Sæland. „Þetta sýnir auk þess í verki vilja þessarar ríkisstjórnar til að styrkja samskipti ríkis og sveitarfélaga.“
Ríkið ber samkvæmt lögunum alfarið ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila og sveitarfélög bera ekki lengur 15% stofnkostnaðar. Sveitarfélögum verður auk þess ekki lengur skylt að úthluta lóðum án greiðslu gatnagerðargjalda. Þegar sveitarfélög úthluta lóðum undir hjúkrunarheimili verður það þó áfram gert án lóðarleigu og án byggingaréttargjalda enda er um almannaþjónustu að ræða.
Bætt þjónusta við eldra fólk
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á fjölgun hjúkrunarrýma.
- Þann 19. mars síðastliðinn var ofangreint samkomulag undirritað sem nú hefur verið fest í lög.
- Í apríl var sagt frá því að ráðgert er að taka í notkun 120 hjúkrunarrými á þessu ári og afla 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028.
- Í byrjun maí tók félags- og húsnæðismálaráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.
- Um miðjan maí mundaði ráðherra sleggju í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði við Nauthólsveg sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
- Þann 23. maí undirritaði ráðherra samning við bæjarstjóra Akureyrar um nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt 2.
- Síðar sama dag undirritaði hún samning sem ætlað er að tryggja framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili í Norðurþingi og sjá til þess að fjögurra ára gömul hola heyri sögunni til.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, með sleggjuna á lofti við Nauthólsveg. Þar er nú unnið að endurbótum á húsnæði sem mun hýsa stórt hjúkrunarheimili.
Við undirritun samnings með Ásthildi Sturludóttur, bæjarstóra á Akureyri, en í Þursaholti verður byggt nýtt hjúkrunarheimili.