Áform um lagasetningu: Varnir gegn tóbaki og nikótíni
Birt hafa verið til umsagnar áform Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra um gerð frumvarps til heildarlaga um varnir gegn tóbaki og nikótíní. Með frumvarpinu verður lagt til að sameina ákvæði laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002 og ákvæði laga um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur nr. 87/2018 í eina heildarlöggjöf um varnir gegn tóbaks- og nikótínvörum. Umsagnarfrestur er til 2. júlí.
Þörf er á að setja tóbaks- og nikótínvörur undir sömu löggjöf þar sem sömu eða sambærilegar reglur gilda. Í ljósi þess hve notkunin er útbreidd og að um er að ræða vörur sem er ávanabindandi og skaðlegar heilsu er brýn þörf á frekari aðgerðum og ljóst miðað við notkun ungmenna að ákvæði laga um aldurstakmörk, sýnileikabann, auglýsingabann o.fl. hafa dugað skammt.
Markmið áformaðrar lagasetningar er að draga úr notkun tóbaks- og nikótínvara, sérstaklega meðal ungmenna. Auk þess að sameina núgildandi ákvæði laga um tóbaksvarnir og nikótínvörur verður með frumvarpinu lagt til að efla verulega varnir gegn tóbaks- og nikótínvörum. Þannig verði settar takmarkanir á sölu nikótínvara sem innihalda bragðefni sem höfða til barna en með lögum nr. 110/2023 var lagt bann við tóbaksvörum með einkennandi bragði en bannið tekur gildi 11. júní 2028. Þá verður lagt til að sömu reglur gildi um notkun sígarettna og rafrettna, ennfremur að umbúðir nikótínvara verði einsleitar líkt og gildir um umbúðir tóbaksvara. Gert er ráð fyrir að óheimilt verði að selja tóbaks- og nikótínvörur í netsölu, framleiðsla tóbaks- og nikótínvara verði leyfisskyld og söluaðilum verði gert skylt að spyrja kaupendur um skilríki. Í frumvarpinu verður einnig skerpt á reglum um viðurlög.