Breyting á lögum um neyslurými til frekari skaðaminnkunar
Alþingi samþykkti í vikunni frumvarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um ávana og fíkniefni. Markmið breytinganna er að mæta betur þörfum jaðarsettra einstaklinga um allt land og draga úr skaða af völdum vímuefnanotkunar. Neyslurými hafa til þessa eingöngu verið ætluð þeim sem nota vímuefni í æð. Með breytingunni verður það ekki skilyrði, heldur geta notendur einnig reykt þar vímuefni eða notað aðra þá aðferð sem þeir kjósa. Þá verður heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum heimilt að stofna og reka neyslurými en sú heimild var áður bundin við sveitarfélögin.
Í nýlegri skýrslu starfshóps heilbrigðisráðherra um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun kemur fram að sveitarfélög eru mislangt á veg komin við að taka upp skaðaminnkandi þjónustu. Með því að heimila heilbrigðisstofnunum og félagasamtökum að koma á fót neyslurýmum eru vonir bundnar við að fleiri slík rými verði sett á fót, ekki aðeins á höfuðborgarsvæðinu heldur víðar um land sé talin þörf á því. Sýnt hefur verið fram á að með því að veita fólki öruggt rými til að nota vímuefni dregur úr líkum á ofskömmtun og öðrum skaða.
Breytingarnar geta jafnframt haft jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið, m.a. með færri veiru- og bakteríusýkingum, styttri legutíma á sjúkrahúsum, snemmbúnum inngripum og minni lyfjakostnaði vegna meðferðar, t.d. við HIV og lifrarbólgu C. Loks má gera ráð fyrir samfélagslegum áhrifum með fjölgun neyslurýma sem felast m.a. í hreinlæti og öryggi á almenningsstöðum. Ávinningurinn verður einnig að bregðast við á heildrænni hátt við vímuefnanotkun fólks og í því felst virðing við notendur og inngilding í samfélagið.