Hoppa yfir valmynd
19. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hólavallagarður friðlýstur

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, staðfestir friðlýsingu vegna Hólavallagarðs við Suðurgötu. - mynd

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, staðfesti í dag friðlýsingu vegna Hólavallagarðs við Suðurgötu. Friðlýsingin tekur til Hólavallagarðs í heild; veggjar umhverfis garðinn, heildarskipulags hans, klukknaports, minningarmarka og ásýndar garðsins. 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er viðeigandi að í dag, 19. júní, kvenréttindadaginn, skuli friðlýsa Hólavallagarð. Hér hvíla merkar konur sem eiga stóran sess í sögu kvenréttindabaráttunnar á Íslandi, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Ingibjörg H. Bjarnason, Katrín Thoroddsen og áfram mætti telja. Með friðlýsingunni er einstakt gildi Hólavallagarðs á ólíkum sviðum undirstrikað. Mér er því ljúft að staðfesta þessa friðlýsingu, en garðurinn er mörgum kær og með honum hefur varðveist svo margt í okkar sögu, hvort sem það tengist minningarmörkum, skipulagi, eða plöntutegundum sem margar hverjar finnast aðeins þar.”

Jóhann Páll segir viðeigandi að Hólavallagarður sé friðlýstur á kvenréttindadaginn, 19. júní.

Hólavallagarður er meðal merkustu kirkjugarða landsins og endurspeglar á einstakan hátt skipulagssögu og uppbyggingu kirkjugarða á 19. og 20. öld. Skráð byggingarár garðsins er 1838 og var hann stækkaður í nokkrum áföngum sem hafði áhrif á þróun hans, m.a. skipulag grafa og gatna milli grafaraða. Í Hólavallagarði hefur varðveist eitt merkasta og heillegasta safn af minningarmörkum á Íslandi sem hafa mikið gildi fyrir listasögu, táknfræði og stílgerð. Í garðinum, sem er um þrír hektarar að stærð, er auk þess að finna fjölbreyttan blóma- og trjágróður sem bera sínum samtíma vitni, auk fágætra mosa- og sveppategunda. 

Friðlýsingin er gerð að tillögu Minjastofnunar Íslands og er í samræmi við ákvæði laga um menningarminjar. Garðurinn hefur notið hverfisverndar samkvæmt deiliskipulagi til að varðveita einstakt menningarsögulegt yfirbragð garðsins vegna minningarmarka og ræktunarsögu. Tillaga Minjastofnunar um friðlýsinguna styður því vel við þessi markmið, og undirstrikar mikilvægi þess að vernda og varðveita garðinn, ásýnd og minningarmörk hans.


Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, sem fyrst setti fram þingsályktunartillögu um friðlýsingu Hólavallagarðs. 

Viðstaddir friðlýsinguna voru auk ráðherra, fulltrúar Kirkjugarða Reykjavíkur og Minjastofnun Íslands, sem friðlýsingin var unnin í góðu samráði við, sem og fulltrúar Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra landslagsarkitekta.

Friðlýsing mun ekki hafa áhrif á umhirðu og daglegan rekstur kirkjugarðsins og áfram verður heimilt að jarðsetja duftker og halda við leiðum í samráði við Kirkjugarða Reykjavíkur.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta