Hoppa yfir valmynd
19. júní 2025 Utanríkisráðuneytið

Ísland og Alþjóðabankinn styðja Síerra Leóne við mótun framtíðarsýnar og stefnu fyrir sjávarútveg í landinu

Stefnunni hleypt af stokkunum 3. júní í Freetown. Frá vinstri: Varasjávarútvegsráðherra Síerra Leóne, Ásdís Bjarnadóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands, fulltrúi Alþjóðabankans, formaður sjávarútvegsnefndar þingsins, forsætisráðherra, sjávarútvegsráðherra, þróunarmálaráðherra, ráðneytisstjóri sjávarútvegráðuneytis og settur yfirmaður fiskimála í sjávarútvegsráðuneytinu. - mynd

Sendiráð Íslands í Freetown og tveir íslenskir sérfræðingar á sviði fiskimála hafa undanfarna mánuði unnið í nánu samstarfi við sjávarútvegsráðuneytið í Síerra Leóne og Alþjóðabankann að mótun heildrænnar stefnu og aðgerðaáætlunar fyrir framþróun sjávarútvegs í landinu. Víðtækt samráð var haft við fiskimannasamfélög, smábátaveiðimenn, iðnaðinn og aðra haghafa í ferlinu. Stjórnvöld í Síerra Leóne kynntu stefnuna við hátíðlega athöfn í byrjun mánaðar. 

Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Freetown, flutti ávarp við tilefnið og sagði ánægjulegt að Ísland hafi getað miðlað af þekkingu og reynslu sinni við þessa vinnu. Þá sagði hún verkefnið samræmast stefnu íslenskra stjórnvalda sem leggja áherslu á það í alþjóðlegri þróunarsamvinnu sinni að beina stuðningi að löndum og málaflokkum þar sem íslensk sérþekking nýtist. Í ávarpi sínu minntist Ásdís jafnframt á að hún vonaðist til að með sjálfbærri nýtingu á sjávarauðlindum gæti Síerra Leóne gert sjávarútveg að burðarás í framþróun ríkisins sem allir landsmenn nytu góðs af. Markviss fiskveiðistjórnun sem byggist á vísindalegum grunni væri grundvöllurinn að slíku.    

Framtíðarsýn stefnunnar er sú að árið 2035 verði Síerra Leóne leiðandi í sjálfbærum fiskveiðum og fiskeldi í vesturhluta Afríku. Stefnan byggir á þremur stefnumiðum sem snúa í fyrsta lagi að gagnaöflun og greiningargetu hvað varðar stofnstærðir og aflamagn, í öðru lagi að koma á markvissri fiskveiðistjórnun, meðal annars með hertu eftirliti með veiðum og afla, og í þriðja lagi aukinni verðmætasköpun í greininni svo sem með innviðauppbyggingu, bættri meðferð afla og nýsköpun ásamt fleiri aðgerðum sem eru líklegar til að tryggja langtímavöxt í greininni og laða að fjárfestingu. 

Stuðningur Íslands við stefnumótunarferlið er þáttur í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands í Síerra Leóne og heildræn stefna og framtíðarsýn er talin vera grundvöllur frekara samstarfs á sviði sjávarútvegs.  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta