Leitar að gervigreindarsérfræðingum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leitar að fulltrúum í nefnd óháðra sérfræðinga sem ætlað er að styðja við innleiðingu og framfylgd gervigreindarlaga ESB (e. AI Act).
Nefndin mun einbeita sér að almennum gervigreindarkerfum (e. General Purpose AI), ráðleggja stjórn gervigreindarmála ESB (e. AI Board) og yfirvöldum ríkjanna um kerfisáhættu, líkanaflokkun, matsaðferðafræði og markaðseftirlit yfir landamæri. Nefndinni er jafnframt ætlað að gera stjórn gervigreindarmála ESB viðvart um nýjar áhættur tengdar tækninni.
Framkvæmdastjórnin leitar að 60 fulltrúum til 24 mánaða, með möguleika á framlengingu. Sérfræðingar verða að hafa doktorsgráðu eða sambærilega reynslu og vera óháðir í störfum sínum.
Í valferlinu verður leitast við að tryggja kynjajafnvægi og að fulltrúar komi frá sem flestum aðildarríkjum ESB- og EES/EFTA-ríkjum. Þó að ríkisborgararéttur í þessum ríkjum sé ekki skilyrði, verða 80% sérfræðinganna frá ESB- og EES/EFTA-ríkjum.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, sem fer með málefni gervigreindar, hvetur áhugasama sérfræðinga um að kynna sér málið betur og sækja um hjá nefndinni. Nánari upplýsingar, þ.m.t. um kröfur til umsækjenda, má nálgast á vef framkvæmdastjórnar ESB.