Hoppa yfir valmynd
20. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra tekur á móti tillögum stýrihóps að stefnu fyrir líffræðilega fjölbreytni

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tekur á móti tillögum stýrihóps að stefnu fyrir líffræðilega fjölbreytni. - mynd

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók á móti tillögum stýrihóps að stefnu fyrir líffræðilega fjölbreytni í vikunni. Drög að hvítbók, „Líffræðileg fjölbreytni: Stefna og markmið til ársins 2030“ er nú aðgengileg til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda.

Stýrihópurinn, sem var skipaður fulltrúum ráðuneyta og stofnana, hafði það hlutverk að undirbúa nýja stefnumótun og framkvæmdaáætlun fyrir líffræðilega fjölbreytni hér á landi til næstu ára.

Tillögur stýrihópsins taka að miklu leyti mið af stefnu Samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Í hvítbókinni setur stýrihópurinn fram tillögur að markmiðum sem eru flokkuð undir sex leiðarljósum:

  • Sterkur sess líffræðilegrar fjölbreytni innan stjórnkerfis
  • Verndun og endurheimt vistkerfa og tegunda
  • Sjálfbær landnotkun og auðlindanýting í sátt við líffræðilega fjölbreytni
  • Framandi ágengar tegundir, mengun og loftslagsbreytingar
  • Líffræðileg fjölbreytni fyrir samfélagið
  • Þekking er undirstaða árangurs

Tillögur sínar vann stýrihópurinn í gegnum samtal við lykilstofnanir, félagasamtök, hagsmunaaðila og almenning. Samráðið fólst einkum í netfundum þar sem umræður fóru fram um lífríki á landi, lífríki í sjó og ferskvatni og um stöðu menntunar og fræðslu í samhengi líffræðilegrar fjölbreytni. Þá var fundað sérstaklega með fulltrúum sveitarfélaga og fulltrúum frjálsra félagasamtaka. Fjöldi ábendinga barst stýrihópnum í gegnum samráðsferlið.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ísland hefur alla burði til að vera leiðandi í verndun líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu ef við tökum vel utan um málaflokkinn. Ég hef nú þegar staðfest fulla aðild Íslands að IPBES, alþjóðlegum vísindavettvangi um líffræðilega fjölbreytni, sem er til þess fallið að efla sess vísinda og líffræðilegrar fjölbreytni innan stjórnkerfisins. Ég fagna þessum tillögum stýrihópsins og hlakka til að fylgjast með viðbrögðum við stefnudrögunum í samráðsgátt“

Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um stefnudrögin „Líffræðileg fjölbreytni: Stefna og markmið til ársins 2030“, og skal umsögnum skilað í Samráðsgátt stjórnvaldaFrestur til þess er til 20. ágúst 2025.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta