Tomasz Chrapek nýr formaður innflytjendaráðs
Tomasz Chrapek er nýr formaður innflytjendaráðs. Tomasz fæddist í Częstochowa í Póllandi árið 1981 og hefur búið í Reykjavík frá árinu 2007.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, skipar innflytjendaráð og er hlutverk þess að:
-
vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málefnum innflytjenda og hafa eftirlit með framkvæmd hennar,
-
stuðla að samhæfingu og samráði milli ráðuneyta, sveitarfélaga og innan stjórnsýslunnar,
-
stuðla að opnum umræðum um málefni innflytjenda með ráðstefnum og fundum með hagsmunaaðilum,
-
gera árlega tillögu til ráðherra um hverjar áherslur þróunarsjóðs innflytjendamála skulu vera,
-
gera árlega tillögu til ráðherra um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála,
-
skila ráðherra árlega skýrslu um störf sín og vinna önnur verkefni í samræmi við markmið laganna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.
Tomasz Chrapek er með meistaragráðu í tölvunarverkfræði frá Tækniháskólanum í Częstochowa og meistaragráðu í félagsfræði frá Jan Długosz-akademíunni. Tomasz hefur brennandi áhuga á samfélagsmálum og var meðstofnandi bæði ProjektPolska.is og Pólska ljósmyndafélagsins á Íslandi (Pozytywni.is). Hann sat í Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR) frá 2014 til 2018 og var formaður Fjölmenningarráðs Reykjavíkur frá 2015 til 2018.
Árið 2019 kom hann á fót vinnuhópnum sem stofnaði Veru, regnhlífarsamtök innflytjendafélaga á Íslandi, og árið 2023 stofnaði hann félagasamtök Circa til að efla félagslega og umhverfislega sjálfbærni. Tomasz hefur verið virkur í stjórnmálum og starfar í dag sem sem kerfissérfræðingur í netöryggisfyrirtæki Varist.
Aðalfulltrúar í innflytjendaráði eru:
- Tomasz Paweł Chrapek formaður, án tilnefningar
- Hanna Guðmundsdóttir varaformaður, án tilnefningar
- Arnar Sigurður Hauksson, tilnefndur af dómsmálaráðuneyti
- Pétur Örn Pálmarsson, tilnefndur af heilbrigðisráðuneyti
- Donata Honkowicz Bukowska, tilnefnd af mennta- og barnamálaráðuneyti
- Helena N. Wolimbwa, tilnefnd af Reykjavíkurborg
- María Ingibjörg Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Varafulltrúar eru:
- Sigurður H. Ingimarsson, án tilnefningar
- Grace Achieng, án tilnefningar
- Ása Dagmar Jónsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneyti
- Drífa Jónasdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
- Óttarr Ólafur Proppé, tilnefndur af mennta- og barnamálaráðuneyti
- Dagbjört Ásbjörnsdóttir, tilnefnd af Reykjavíkurborg
- Ingimar Guðmundsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Starfsmaður innflytjendaráðs er Áshildur Linnet, sérfræðingur í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
Fyrri formaður innflytjendaráðs var Paola Cardenas og þar áður gegndi Tatjana Latinovic formennsku.