Úthlutað úr Jafnréttissjóði Íslands
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra úthlutaði í gær styrkjum úr Jafnréttissjóði Íslands til tíu verkefna við hátíðlega athöfn í Hannesarholti.
Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður 19. júní 2015 í tilefni af 100 ára kosningarréttarafmæli íslenskra kvenna. Tilgangur Jafnréttissjóðs Íslands er að stuðla að jafnrétti kynjanna með því að styrkja verkefni og rannsóknir á sviði jafnréttis.
Fjögur af þessum verkefnum hlutu hvert um sig um sjö milljón króna styrki sem eru hæstu styrkirnir að þessu sinni. Jafnréttissjóður Íslands útdeildir 60 milljónum króna annað hvert ár.
Guðrún Ágústsdóttir, formaður stjórnar Jafnréttissjóðs Íslands, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála.
Verkefnin sem hljóta styrk í ár eru:
- Berglind Hólm Ragnarsdóttir fær styrk fyrir verkefnið: Verkakonur, vellíðan og velferðarkerfið.
- Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir fær styrk fyrir verkefnið: Heimildamyndin Huldufreyjur.
- Drífa Jónasdóttir fær styrk fyrir verkefnið: Birtingarmynd ofbeldis á Bráðamóttöku Landspítala.
- Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson fær styrk fyrir verkefnið: Hvað á baráttan að heita? Woke, anti-woke og réttlætisbarátta á Íslandi.
- Háskólinn í Reykjavík fær styrk fyrir verkefnið: Er kynjamunur í frásögnum af kynferðisofbeldi, félagslegum viðbrögðum og áhrifum á geðheilsu?
- Karítas Hrundar Pálsdóttir fær styrk fyrir verkefnið: Ritlist til inngildingar.
- Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir fær styrk fyrir verkefnið: Siðfræði nándar: ungt fólk, samþykki og mörk í kjölfar MeToo.
- Katrín Ólafsdóttir fær styrk fyrir verkefnið: Drengjaorðræða og kynjuð samskipti á vettvangi skóla.
- Nanna Kristjánsdóttir fær styrk fyrir verkefnið: Stelpur diffra.
- Sólveig B Sveinbjörnsdóttir fær styrk fyrir verkefnið: Reynsla og aðstæður innflytjenda og áhrif þeirra á barneignir og fjölskyldulíf á Íslandi.
Myndir frá styrkveitingum Jafnréttissjóðs 2025