Hoppa yfir valmynd
20. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Úthlutun styrkja til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands

Plast á strönd - myndHeidi Orava/norden.org

Umhverfis- og orkustofnun hefur úthlutað styrkjum til hreinsunar á strandlengju Íslands. Styrkirnir eru liður í aðgerðaáætlun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins. Hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir gegna þar veigamiklu hlutverki.

Tilgangurinn með styrkveitingunum er sá að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, að efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.

Alls bárust níu umsóknir um styrk, en heildarstyrkupphæð er 30 milljónir króna.

Þau sem hlutu styrk að þessu sinni eru:

Styrkþegar

Upphæð

Blái herinn

2.820.000

Hollvarðasamtök Fjölbrautaskóla Suðurlands

250.000

Ocean Missions

2.940.000

SEEDS

5.820.000

Umhverfissamtök Austur Skaftafellssýslu

800.000

Ungmennafélagið Fram Skagaströnd

650.000

Veraldavinir

16.640.000

 

Nánari upplýsingar um átakið má finna á vefsíðunni strandhreinsun.is

Reglur um styrkveitingar til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands

 

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta