Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. júlí 2025
Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. júlí nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í flestum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.
Niðurstöður úthlutunar á ESB tollkvótum
Laugardaginn 31. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1168/2024 fyrir tímabilið 1. júní til 31. desember 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 23 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 1.906 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 597 kr./kg.
Vörulýsing |
Tollkvóta úthlutað (kg) |
Fjöldi samþykktra tilboða |
Jafnvægisverð (kr./kg) |
Nautgripakjöt |
348.000 |
11 |
661 |
Svínakjöt |
350.000 |
10 |
400 |
Alifuglakjöt |
428.000 |
8 |
604 |
Alifuglakjöt* |
100.000 |
2 |
320 |
Reykt og saltað kjöt |
50.000 |
8 |
425 |
Sérostur ** |
115.000 |
8 |
0 |
Ostur |
190.000 |
11 |
991 |
Pylsur |
125.000 |
5 |
569 |
Unnar kjötvörur |
200.000 |
10 |
980 |
(*) alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið úr 0207
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla. Úthlutað með hlutkesti.
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.
Niðurstöður úthlutunar á WTO tollkvótum
Laugardaginn 31. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum á grundvelli aðildarsamnings Íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (e. WTO) með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, samkvæmt reglugerð nr. 462/2025 fyrir tímabilið 1. júlí 2025 til 30. júní 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 18 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 912 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 247 kr./kg.
Vörulýsing |
Tollkvóta úthlutað (kg) |
Fjöldi samþ. tilboða |
Jafnvægisverð (kr./kg) |
Nautgripakjöt |
95.000 |
5 |
769 |
Svínakjöt |
64.000 |
5 |
0 |
Kinda- eða geitakjöt |
345.000 |
8 |
0 |
Kjöt af alifuglum |
59.000 |
2 |
253 |
Smjör og önnur fita |
53.000 |
7 |
0 |
Ostur og ystingur |
119.000 |
2 |
612 |
Fuglsegg |
76.000 |
3 |
110 |
Unnar kjötvörur |
86.000 |
5 |
650 |
Hross |
15.000 |
1 |
0 |
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.
Niðurstöður úthlutunar á EFTA tollkvótum
Laugardaginn 31. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í EFTA tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss á grundvelli stofnsáttmála EFTA ríkjanna, með vísan til reglugerðar nr. 461/2025 fyrir tímabilið 1. júlí 2025 til 30. júní 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust tvö tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 25 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 0,6 kr./kg.
Vörulýsing Tollkvóta úthlutað (kg) Fjöldi samþ. tilboða Jafnvægisverð (kr./kg).
Vörulýsing |
Tollkvóta úthlutað (kg) |
Fjöldi samþ. tilboða |
Jafnvægisverð (kr./kg) |
Ostur og ystingur |
15.000 |
1 |
1 |
Nautgripakjöt |
10.000 |
1 |
0 |
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.
Niðurstöður úthlutunar á tollkvótum fyrir plöntur og blóm
Laugardaginn 31. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á blómum með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1167/2024 fyrir tímabilið 1. júlí 2025 til 31. desember 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 4 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað ekki úthlutað að fullu, en engin tilboð bárust í blómstrandi plöntur og pottaplöntur. Samanlagt var 125.250 stk. tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 36 kr./stk.
Vörulýsing |
Tollkvóta úthlutað (stk.) |
Fjöldi samþ. tilboða |
Jafnvægisverð (kr./stk.) |
Blómstrandi plöntur |
0 |
- |
- |
Pottaplöntur |
0 |
- |
- |
Tryggðarblóm |
6.500 |
1 |
62 |
Afskorin blóm |
118.750 |
4 |
35 |