Öflugt foreldrastarf í þágu barna
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag nýjan styrktarsamning við Heimili og skóla. Samtökin fá viðbótarframlag til að annars vegar veita ráðgjöf og stuðning við foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og samtök þeirra: Móðurmál, samtök um tvítyngi. Hins vegar til að taka virkan þátt með ráðgjöf og fræðslu í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna.
Samningurinn er viðbót við almennan styrktarsamning sem undirritaður var fyrr á árinu og gilda samningarnir til ársloka. Meginmarkmiðið er að efla samstarf heimila og skóla um land allt í skóla- og frístundastarfi, tryggja ráðgjöf og stuðning samtakanna til að stuðla að aukinni farsæld barna og ungmenna, bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum þeirra með hagsmuni og réttindi þeirra að leiðarljósi.
Landssamtökin Heimili og skóli voru stofnuð árið 1992. Þau veita ráðgjöf og stuðning til foreldra og foreldrasamtaka um allt land, ásamt því að gefa út fjölbreytt fræðsluefni til stuðnings við foreldra. Samtökin gegna mikilvægu hlutverki í innleiðingu menntastefnu 2030 og samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, með virkri þátttöku foreldra. Jafnframt höfðu þau mikilvægu hlutverki að gegna í endurreisn foreldrastarfs í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveirunnar með stuðningi stjórnvalda.
Viðbótarframlag nemur 30 m.kr. og heildarstyrkur á árinu samtals 50 m.kr. sem er 5% hækkun framlags frá fyrra ári.