Ráðherrar EFTA-ríkjanna ítreka stuðning við frjáls og opin viðskipti
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sat í dag fyrir Íslands hönd árlegan ráðherrafund Fríverslunarsamtaka Evrópu - EFTA. Fundurinn fór fram í Tromsø í Noregi og markar endalok eins árs formennsku Noregs innan EFTA-samstarfsins. Ísland mun taka við formennskukeflinu 1. júlí næstkomandi og leiða samstarfið næstu tólf mánuði.
Á fundinum ítrekuðu ráðherrar EFTA-ríkjanna áframhaldandi stuðning sinn við reglumiðað, opið og sanngjarnt alþjóðaviðskiptakerfi. Undirritaður var fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Malasíu auk þess sem mikilvægi nýrra samninga EFTA-ríkjanna við Taíland, Malasíu og Kósovó var áréttað. Ráðherrarnir ræddu einnig yfirstandandi fríverslunarviðræður við Mercosur-ríkin, það er Argentína, Brasilía, Paragvæ og Úrúgvæ, sem og við Víetnam og Singapúr. Þá ræddu ráðherrarnir einnig undirbúning að gildistöku fríverslunarsamningsins við Indland en vonir standa til að samningurinn geti tekið gildi síðar á árinu.
„Ráðherrafundur EFTA-ríkjanna fjögurra er mikilvægur vettvangur til að stilla saman strengi og halda áfram að efla EFTA-samstarfið. Það var mikill heiður að undirrita fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning við Malasíu. Fríverslunarsamningar sem þessir eru ekki bara mikilvægir fyrir íslenskt atvinnulíf heldur sýnum við með gerð slíkra slíkra samninga skýran stuðning við alþjóðaviðskiptakerfið á tímum aukinnar verndarhyggju,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Ráðherrar EFTA-ríkjanna ræddu mikilvægi samvinnu við Evrópusambandið og áframhaldandi þátttöku EES-ríkjanna innan EFTA í þróun innri markaðarins. Þá var kynnt ný upplýsingaveita sem EFTA-skrifstofan hefur opnað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Áhersla var lögð á áframhaldandi mikilvægi gagnsæis og samráðs við þingmannanefnd EFTA ásamt ráðgjafarnefnd EFTA sem skipuð er fulltrúum atvinnulífs og samtaka launafólks frá EFTA-ríkjunum. Ráðherrarnir funduðu með nefndunum og ræddu meðal annars stuðning við enduruppbyggingu í Úkraínu í tengslum við uppfærðan fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Úkraínu.