Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í dag í Haag í Hollandi, þar sem gert er ráð fyrir að aukin framlög bandalagsríkja til sameiginlegra varna bandalagsins verði helsta mál á dagskrá. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.
Formleg dagskrá leiðtogafundarins hefst í kvöld með hátíðarkvöldverði leiðtoga bandalagsríkja í boði konungshjóna Hollands. Forseti Úkraínu, leiðtogar Evrópusambandsins (ESB), forsætisráðherra Nýja Sjálands og háttsettir fulltrúar Japans, Suður Kóreu og Ástralíu verða jafnframt meðal gesta. Á sama tíma funda utanríkisráðherrar bandalagsins í NATO-Úkraínuráðinu um stöðu mála í Úkraínu með utanríkisráðherra landsins og utanríkismálastjóra ESB. Þá funda varnarmálaráðherrar bandalagsríkja einnig í eigin ranni um varnir og skuldbindingar bandalagsins í ljósi gjörbreytts öryggisumhverfis á Evró-Atlantshafssvæðinu.
Á morgun fer svo fram formlegur fundur leiðtoga bandalagsríkja þar sem framlög til varnarmála, ný viðmið og jafnari byrðir verða ofarlega á blaði, sem og ógnin frá Rússlandi og friðarumleitanir og stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu. Þá mun staða mála og nýjar vendingar í Miðausturlöndum setja mark sitt á umræður og samtöl á leiðtogafundinum.
Hægt er að fylgjast með dagskrá leiðtogafundarins á vefsíðu Atlantshafsbandalagsins.