Halldór Jón Gíslason skipaður skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Halldór hefur starfað við skólann frá árinu 2017 sem aðstoðarskólameistari og áfangastjóri. Hann hefur einnig starfað við verkefnastjórn á Hvalasafninu á Húsavík og við kennslu í Framhaldsskólanum auk annarra starfa.
Halldór er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun auk kennsluréttinda í framhaldsskóla frá sama skóla. Hann hefur lokið grunnnámi í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Alls sóttu tveir um embættið.