Hoppa yfir valmynd
24. júní 2025 Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Women of the Sun heiðruð með Vigdísarverðlaununum

Palestínsku samtökin Women of the Sun tóku við Jafnréttisverðlaunum Vigdísar Finnbogadóttur í Strassborg. - mynd

Palestínsku samtökin Women of the Sun hlutu í gær alþjóðleg jafnréttisverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women Empowerment, við hátíðlega athöfn í Strassborg.

Evrópuráðsþingið og ríkisstjórn Íslands standa að verðlaununum sem ætlað er að vekja athygli á einstaklingum, stofnunum eða samtökum sem hafa stuðlað að valdeflingu kvenna með framúrskarandi hætti með aðferðum sem stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnari samfélagslegri þátttöku kvenna eða aðgerðum sem vekja athygli á ójafnri stöðu kvenna og hvetja til úrbóta.

Women of the Sun vinna að valdeflingu palestínskra kvenna með því að styrkja rödd þeirra og áhrif bæði í stjórnmálum og viðskiptalífi bæði innan Palestínu og á alþjóðlegum vettvangi. Samtökin voru stofnuð árið 2021 af Reem al-Hajajreh og eru megináherslur þeirra að efla aðgengi kvenna að menntun, hvetja konur til að taka að sér leiðtogahlutverk, styðja konur í atvinnurekstri og skapa tækifæri fyrir konur til framtíðar. Þá leitast samtökin einnig við að sameina palestínskar og ísraelskar konur í friðarsamstarfi.

Alls bárust 111 tilnefningar til verðlaunanna og sérstök dómnefnd valdi þrjár tilnefningar sem þóttu skara fram úr. Auk Women of the Sun voru tvö önnur verkefni tilnefnd. Annars vegar samtökin Green Girls Foundation frá Kamerún, hins vegar hin franska Gisèle Pelicot, sem gerðist öflug talskona gegn kynbundnu ofbeldi þegar hún kom fram undir nafni í réttarhöldum sem þolandi kynferðisofbeldis.

Þetta var í annað skipti sem verðlaunin voru veitt, en þau voru fyrst afhent árið 2024 til grísku grasrótarsamtakanna Irida Women‘s Center sem hlutu þau fyrir starf sitt gegn fátækt, félagslegri einangrun og kynbundnu ofbeldi.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta