Ísland veitir viðbótarframlag til starfsemi UNRWA
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 150 milljóna króna viðbótarkjarnaframlag til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tilkynnti um framlagið á ársfundi ráðgjafaráðs UNRWA (Advisory Commission) sem haldinn var á fjarfundarformi í gær, 25. júní. Þá hefur einnig verið ákveðið að veita 30 milljóna króna viðbótarframlag til svæðissjóðs Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) fyrir Palestínu (OCHA oPt).
„Það er skylda þjóða heimsins að leggja sitt af mörkum til að reyna hvað þær geta til að lina þjáningar íbúa Gaza sem hafa þurft að upplifa algjöran hrylling og horfa nú fram á hræðilegan skort,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Stuðningur við þá grunnþjónustu sem UNRWA veitir Palestínuflóttamönnum á Gaza og Vesturbakkanum og í nágrannaríkjunum; Jórdaníu, Sýrlandi og Líbanon, er lykilþáttur í að viðhalda eins miklum stöðugleika og mögulegt er í þessum hörmulegu aðstæðum. Ástandið er þyngra en tárum taki og alþjóðasamfélagið verður að bregðast við.”
Ísland hefur ekki átt aðild að ráðgjafaráði UNRWA en fékk að þessu sinni sérstakt boð um að sækja fund þess í ljósi þeirra aðstæðna sem ríkja í Mið-Austurlöndum og á grundvelli þess að hafa um árabil verið stuðningsríki stofnunarinnar. UNRWA þiggur umboð sitt frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og hefur þorri aðildarríkjanna mótmælt banni ísraelskra stjórnvalda við starfsemi UNRWA á Gaza, þar á meðal Ísland.
Vegna þess neyðarástands sem skapast hefur á Gaza hafa íslensk stjórnvöld hækkað framlög sín til neyðaraðstoðar á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Frá því 2023 hafa kjarnaframlög til UNRWA numið yfir 250 milljónum króna. Á þessu ári eru framlögin nú þegar orðin 260 milljónir króna.
Auk UNRWA hefur Ísland styrkt Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP), svæðasjóð OCHA fyrir Palestínu, Rauða hálfmánann á Gaza gegnum Rauða krossinn á Íslandi, og UNESCO. Þá eru ótalin framlög frá þróunarsamvinnuhliðinni, sem einkum er beint í gegnum Alþjóðabankann, auk tveggja palestínskra félagasamtaka.