Hoppa yfir valmynd
26. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Átta verkefni hljóta styrk úr Grænlandssjóði árið 2025

Grænland - myndMyndabanki Stjórnarráðsins

Átta verkefni hljóta styrk úr Grænlandssjóði árið 2025. Þar á meðal eru verkefni á sviði íþrótta, tónlistar, þýðinga, skólaheimsókna, frásagnarsmiðju og þekkingarmiðlunar milli bænda.

Hlutverk Grænlandssjóðs er að efla samskipti Grænlands og Íslands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttaviðburða og annarra málefna á sviði menningar, menntunar og vísinda sem geta stuðlað að auknum samskiptum Grænlendinga og Íslendinga.

Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr Grænlandssjóði 27. mars síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 22. apríl. Alls bárust 20 umsóknir.

Stjórn Grænlandssjóðs lagði mat á umsóknir og gerði að tillögu sinni til ráðherra að átta verkefni hlytu styrk á árinu 2025 og á það hefur ráðherra fallist. Heildarfjárhæð styrkjanna er 4.380.000 kr.

Hæsta styrkinn, eina milljón kr., hlýtur Kalak –vinafélag Íslands og Grænlands til að standa straum af kostnaði við íþrótta- og menningarheimsókn 13 ára skólabarna frá Austur-Grænlandi. Næsthæsta styrkinn, 750.000 kr., hlýtur hópur listamanna sem stendur að tónlistarverkefni sem hefur útgangspunkt annars vegar í íslenska verkinu Ólafs ríma Grænlendings og hins vegar í grænlensku þjóðsögunni um Naravanaaq. Hluti af verkefninu er tónleikahald í Reykjavík, Nuuk og Ósló.

Önnur verkefni, sem hljóta styrk á bilinu frá 200.000 kr. til 580.000 kr., eru Nuuk svømmeklub vegna þátttöku grænlenskra sundkappa á unglingastigi til að taka þátt í Reykjavíkurleikunum; The Grief of the North sem er ljósmyndaröð sem fjallar um aðskilnað ínúítabarna frá fjölskyldum sínum; Menningarbrú bænda sem er þekkingarmiðlun milli bænda á Íslandi og Grænlandi; þýðing á sagnfræðibók sem fjallar um söguleg málefni á Grænlandi og Íslandi; Söguhringur – sem er frásagnalistarsmiðja milli Íslands og Grænlands þar sem unnið er með munnlegar frásagnarhefðir, tónlist og dans; og þjálfun nýstofnaðs landsliðs Grænlands í skák vegna fyrirhugaðra Ólympíuleika í skák en um er að ræða fyrstu þátttöku Grænlands á þessu móti.

Grænlandssjóður starfar samkvæmt lögum nr. 108/2016. Stjórn Grænlandssjóðs er skipuð Karítas Ríkharðsdóttur formanni sjóðsstjórnar, Guðmundi Ara Sigurjónssyni fulltrúa Alþingis og Svandísi Svavarsdóttur fulltrúa utanríkisráðuneytis.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta