Hoppa yfir valmynd
26. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Embætti framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna auglýst til umsóknar

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið óskar eftir metnaðarfullum einstaklingi í embætti framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna. Um starfsemi Menntasjóðs námsmanna fer samkvæmt lögum um sjóðinn nr. 60/2020. Framkvæmdastjóri sinnir daglegum rekstri Menntasjóðsins, sér um fjárreiður, reikningsskil og gerð fjárhagsáætlana og ber ábyrgð á að sjóðurinn starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sjóðsins sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir hans séu nýttir með réttum hætti.

Umsóknarfrestur er til og með 11.07.2025

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegri starfsemi sjóðsins, fjárreiðum hans og rekstri.
  • Gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni.
  • Ábyrgð á mannauðsmálum.
  • Samstarf við stjórn sjóðsins.
  • Fer með fyrirsvar sjóðsins út á við og ber ábyrgð á samskiptum við fagráðu-neyti og aðra opinbera aðila.
  • Eftirfylgni með framkvæmd laga um Menntasjóð námsmanna og úthlutunarreglum sjóðsins.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Yfirgripsmikil reynsla á sviði stjórnunar og rekstrar.
  • Þekking og haldgóð reynsla af fjárhagsáætlanagerð og reikningsskilum í samræmi við lög um opinber fjármál.
  • Þekking á málefnum Menntasjóðs námsmanna er æskileg.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni.
  • Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði i starfi.
  • Þekking og reynsla af stjórnsýslulögum.
  • Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu norðurlandamáli er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið má nálgast á starfatorgi auk upplýsinga um starf sérfræðings í gervigreind og starf sérfræðings í háskóla og vísindamálum.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta