Föstudagspóstur 27. júní 2025
Heil og sæl.
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins var haldinn í Haag í vikunni og sóttu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundinn fyrir Íslands hönd. Á fundinum var ítrekaður einróma stuðningur aðildarríkjanna við baráttu Úkraínu gegn grimmilegri árás Rússlands. Einnig ríkti einhugur um að efla varnir bandalagsríkja, með því að hækka framlög til varnarmála í 3,5% af VLF fyrir árið 2035 og verja 1,5% til varnartengdra verkefna. Hér má finna sameiginlega yfirlýsingu leiðtogafundar Atlantashafsbandalagsins sem var samþykkt einróma við lok fundarins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veitti innsýn inn í leiðtogafundinn með skemmtilegu myndskeiði á samfélagsmiðlum.
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 150 milljóna króna viðbótarkjarnaframlag til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tilkynnti um framlagið á ársfundi ráðgjafaráðs UNRWA (Advisory Commission) sem haldinn var á fjarfundarformi 25. júní.
Stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu fundaði í vikunni í Reykjavík og kom utanríkisráðuneytið að opinni málstofu undir yfirskriftinni Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Úkraínu“ í tengslum við heimsóknina.
Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri tók á móti ráðuneytisstjóra utanríkisviðskipta, Sunil Barthwal, og ræddi við hann um framtíðarmöguleika frekara samstarfs ríkjanna.
Þá greindi ráðuneytið frá því að fulltrúar á vegum þess aðstoðuðu sextán dvalarleyfishafa á Gaza til Íslands.
Fundur ríkjahóps um sprengjuleit- og eyðingu í Úkraínu funduðu í Reykjavík í síðustu viku og var Þorgerður Katrín stolt af því að leiða þetta mikilvæga verkefni.
Sendiráðið í Brussel vígði nýjan sendiherrabústað á þjóðhátíðardaginn og buðu sendiherrahjónarnir Kristján Andri Stefánsson og Davíð Samúelsson fjölda gesta í heimsókn í tilefni dagsins. Kristján Andri er að ljúka fimm ára veru sem sendiherra Íslands í Brussel og nýttu hjónarnir tækifærið að kveðja góða kollega og vini og þakka fyrir gott samstarf á liðnum árum.
Þá var nóg um að í Peking. Sendiráðið tók á móti móti nokkrum fyrrverandi nemendum GRÓ til a ræða tillögur þekkingarmiðstöðvarinnar um víðtækara netverk fyrrverandi nemenda GRÓ skólanna í Kína.
Sendiráðið minntist þess að 30 voru liðin frá Kvennaráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Peking 1995 og hélt tvær fjölsóttar ráðstefnur í sendiráðinu. Þá tók Inga Dóra Pétursdóttir, staðgengill sendiherra, þátt í pallborðsumræðum sendiráðs Keníu og UN Women í húsakynnum skrifstofu Sameinuðu Þjóðanna í Peking.
Sendiráðið stóð einnig fyrir sérstökum Íslandsdegi í Ulaanbaatar ásamt ræðismanni Íslands í Mongólíu. Inga Dóra Pétursdóttir, staðgengill sendiherra og Bold Magvan ræðismaður opnuðu viðburðinn, en þeir Ásmundur Einar Daðason og Teitur Erlingsson héldu erindi um sjálfbæran landbúnað og beitarstjórnun. Fyrr um daginn ávarpaði Inga Dóra hóp fyrrverandi nemenda GRÓ og kynnti tillögur þekkingarmiðstöðvarinnar um víðtækara netverk fyrrverandi nemenda GRÓ skólanna.
Þórir Ibsen sendiherra í Peking sótti úgáfuhóf ljóðabókarinnar "Dance of Ice & Fire - Bilingual Poetry Collection of China and Iceland" á 31. alþjóðlegu bókamessunni í Peking.
Í Genf er 59. lota Mannréttindaráðsis í fullum gangi þar sem fastanefndin okkar tekur virkan virkan þátt í samningaviðræðum, meðal annars um framlengingu á umboði óháðs sérfræðings SÞ í málefnum hinsegin fólks. Einar Gunnarsson fastafulltrúi flutti ávarp fyrir hönd NB8-ríkjanna þar sem stuðningur ríkjanna við framlengingu umboðsins kom skýrt fram.
Today at #HRC59 the NB8 🇩🇰🇫🇮🇪🇪🇮🇸🇱🇻🇱🇹🇳🇴🇸🇪reiterated their unwavering support for the mandate of the Independent Expert on Sexual Orientation and Gender Identity. The mandate advances substantive equality in a meaningful and constructive manner
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) June 20, 2025
👉https://t.co/fI1vhVkxjx pic.twitter.com/afvT7mkBlo
Þá er undirbúningur fastanefndarinnar yrir EM kvenna í Sviss í fullum gangi og birtu þau hjálplegt plagg fyrir ferðalanga.
Auðunn Atlason sendiherra okkar í Berlín sótti árlega kynningarferð hóp diplómata í Berlín undir handleiðslu Frank-Walter Steinmeier Þýskalandsforseta.
Íslenski hesturinn var svo til sýnis á götum Parísarborgar og birti sendiráð Íslands í París myndir frá viðburðinum.
Sendiráð Íslands í Osló, sem er sendiráð Íslands gagnvart Grikklandi, tók þátt í afar vel heppnuðum viðburði í Aþenu þar sem árángursríku sjóðstímabili Uppbyggingasjóðs EES var fagnað.
Sendiráðið í Osló fékk einnig heimsókn frá Sindre Stemshaug Bornstein, nýráðnum forstjóra Nordic Innovation, og Þórði Reynissyni, verkefnastjóra hjá Nordic Innovation, sem fóru yfir áherslur Nordic Innovation næstu ára og Oslo Innovation Week í október.
Ragnar Þorvarðarson varamaður sendiherra Íslands í Tókýó tók á móti Bernard Lim, sérstökum erindreka samgönguráðherra Singapúr, og ræddi við hann um samstarf Íslands og Singapúr á sviði samgöngumála.
Stefán Haukur Jóhannesson kvaddi sendiráð okkar í Tókýó eftir fjögurra og hálfs árs dvöl og heldur Stefán nú til Brussel og tekur við starfi sendiherra þar.
Sendiráðið í Lilongwe fékk heimsókn frá Þroskahjálp til að fylgjast með framvindu verkefnis styrktu af ríkisstjórn Íslands í samstarfi við Federation of Disability Organisations in Malawi (FEDOMA). Verkefnið miðar að því að stuðla að skóla án aðgreiningar og efla þátttöku fatlaðra barna í Mangochi-héraði.
Friðrik Jónsson undirritaði opið bréf til stuðnings hinsegin fólks í Póllandi en bréfið er hluti af "Diplomats for Equality" verkefninu.
Góða helgi!
Upplýsingadeild.