Starfshópur skilar drögum að stefnu um virka ferðamáta og smáfarartæki
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fékk fyrr í vikunni afhenta skýrslu starfshóps með tillögum að heildstæðri stefnu stjórnvalda og aðgerðaáætlun um virka ferðamáta og smáfarartæki. Starfshópurinn byggir tillögur sínar á greiningu á stöðu og þörfum, alþjóðlegum fyrirmyndum og víðtæku samráði við hagaðila.
Tillögur starfshópsins verða nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu en stefnt er að því að kynna formlega stefnu í haust samhliða mótun samgönguáætlunar til næstu fimmtán ára. Skýrsla starfshópsins var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
„Það er mikilvægt að fólkið í landinu hafi raunhæft val um fjölbreytta og hagkvæma ferðamáta. Við munum áfram vinna af kappi við byggja upp innviði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og notendur smáfarartækja. Ég þakka starfshópnum fyrir öfluga vinnu og tillögur hópsins verða hryggjarstykkið í nýrri heildarstefnu á þessu sviði. Ég hyggst leggja fram stefnuna fram með formlegum hætti með haustinu samhliða samgönguáætlun,“ segir Eyjólfur Ármannsson ráðherra.
Tillaga að framtíðarsýn og meginmarkmiðum
Markmið stefnu yrði að móta skýran ramma fyrir þróun samgöngukerfis þar sem gangandi, hjólandi og notendur smáfarartækja njóta öruggs, aðgengilegs og sjálfbærs umhverfis allt árið um kring. Í skýrslu starfshópsins er sett fram eftirfarandi framtíðarsýn:
„Ísland er samfélag sem styður við fjölbreytta ferðamáta. Öruggir innviðir fyrir gangandi, hjólandi og smáfarartæki stuðla að raunhæfu vali á milli fjölbreyttra samgöngukosta. Umhverfi virkra ferðamáta er aðlaðandi og aðgengilegt, allt árið um kring.“
Lagt er til að þrjú meginmarkmið varði leiðina að þessari framtíðarsýn:
- Öryggi – fækka slysum á óvörðum vegfarendum.
- Aðgengi – auka aðgengi allra að fjölbreyttum samgöngukostum.
- Skilningur – efla gagnkvæman skilning og virðingu á milli notenda ólíkra ferðamáta.
Tillögur að fimmtán aðgerðir í takt við markmið
Starfshópurinn leggur til ítarlega aðgerðaáætlun með stefnunni með fimmtán aðskildum aðgerðum sem miða m.a. að því að bæta innviði, efla vetrarþjónustu, samræma hönnunarviðmið og skipulag og styðja við fræðslu og upplýsingagjöf. Lögð er áhersla á skýra ábyrgðarskiptingu og samhenta framkvæmd á milli ríkis og sveitarfélaga. Þá eru settar fram tillögur um hagræna hvata, greiningarverkefni og mótun samgöngustefnu hjá opinberum vinnustöðum.
Um starfshópinn
Starfshópurinn var skipaður í september sl. til að greina stöðu virkra ferðamáta og smáfarartækja á Íslandi sem og þá valkosti sem til staðar eru til að efla ferðamátana. Verkefni hópsins var að móta tillögu að stefnu og forgangsraðaðri aðgerðaáætlun til næstu ára, ásamt mælanlegum markmiðum. Í starfshópnum sátu eftirtaldir:
- Sigrún Helga Lund prófessor í tölfræði við HÍ, fulltrúi ráðherra,
- Gunnar Geir Gunnarsson, tilnefndur af Samgöngustofu,
- Haukur Eggertsson, tilnefndur af Landssamtökum hjólreiðamanna,
- Bryndís Friðriksdóttir, tilnefnd af Vegagerðinni,
- Katrín Halldórsdóttir, tilnefnd af Betri samgöngum,
- Dóra Björt Guðjónsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Starfshópurinn fundaði tólf sinnum og bauð ýmsum hagaðilum á samráðsfundi Einnig var öllum sveitarfélögum og landshlutasamtökum boðið að koma á framfæri athugasemdum vegna vinnunnar.