Hoppa yfir valmynd
27. júní 2025 Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

Starfshópur vinnur tillögur að viðbrögðum vegna stöðu atvinnumála í Norðurþingi

 Húsavíkurhöfn - mynd Mynd: iStock

Starfshópur sem skipaður var af forsætisráðherra vinnur nú að kortlagningu á stöðu atvinnumála í Norðurþingi en tilkynnt hefur verið um tímabundna rekstrarstöðvun kísilvers PCC á Bakka frá miðjum júlí. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Hópurinn mun einnig vinna tillögur að mögulegum viðbrögðum stjórnvalda til skemmri og lengri tíma. Skýrslu verður skilað um miðjan september. Starfshópurinn mun horfa sérstaklega til vinnu við atvinnustefnu stjórnvalda sem nú er í mótun.

Starfshópurinn fór á dögunum í vettvangsferð til Húsavíkur þar sem hann fundaði með fulltrúum PCC Bakka, Norðurþings, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, samstarfsverkefnisins Eims, Framsýnar stéttarfélags og Þingiðnar, félags iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum.

Formaður hópsins er Helgi Valberg Jensson, fulltrúi forsætisráðuneytis, en auk hans eru í hópnum þau Anna Borgþórsdóttir Olsen, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytis, Hólmfríður Sveinsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis, Jón Skafti Gestsson, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, og Snæfríður Arnardóttir, fulltrúi atvinnuvegaráðuneytis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta