Hoppa yfir valmynd
27. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Átta hafa hlotið tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Þema ársins er „Þáttur borgarasamfélagsins í umhverfismálum – verkefni sem virkja almenning í grænum umskiptum“, en með því beina umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs kastljósinu að mikilvægi þess að almenningur taki þátt í grænu umskiptunum.

Verkefnin sem hljóta tilnefningu að þessu sinni eru:

  • ALDIN gegn loftslagsvá (hreyfing eldra fólks gegn loftslagsvánni)
  • World Saving Hustle
  • Minik T. Rosing prófessor
  • Trygga Orten – Håll Sverige Rent
  • HUGLA
  • Euphoria Film AB
  • Grønne Nabofællesskaber
  • Foreningen Ålands Natur och Miljö

Tilkynnt verður 21. október hver hlýtur verðlaunaféð 300.000 danskar krónur, en verðlaunin verða afhent með athöfn í Stokkhólmi þann 28. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og er markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Þau eru veitt norrænum fyrirtækjum, samtökum eða einstaklingum sem öðrum til eftirbreytni hefur tekist að samþætta umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta