Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2025 Utanríkisráðuneytið

EFTA og Mercosur-ríkin ná samkomulagi um fríverslunarsamning

Fulltrúar EFTA og Mercosur-ríkjanna eftir að tilkynnt var um samkomulagið í Buenos Aires í dag. - myndMinisterio de Relaciones Exteriores, Comercio Internacional y Culto de la República Argentina

EFTA-ríkin, þ.e. Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss, hafa náð samkomulagi við Mercosur-ríkin, sem samanstanda af Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ, um fríverslunarsamning. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Buenos Aires í Argentínu í dag, þar sem ráðherrafundur Mercosur-ríkjanna fór fram. Ragnar G. Kristjánsson, sendiherra og skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, tók þátt í  athöfninni fyrir hönd Íslands.

Samningurinn, sem til stendur að fullgilda síðar á þessu ári, kemur til með að bæta aðgengi íslenskra fyrirtækja að stóru markaðssvæði með yfir 260 milljónir íbúa, styrkja viðskiptatengsl Íslands og Suður-Ameríku og skapa ný tækifæri, sérstaklega hvað varðar markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir. 

„Ég fagna þessum víðtæka og metnaðarfulla samningi, sem er afrakstur virkrar þátttöku okkar í samningaviðræðunum frá upphafi. Hann skapar mikilvæg tækifæri á stærsta markaðssvæði Suður-Ameríku og endurspeglar skýra stefnu Íslands um að fjölga tækifærum fyrir íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

EFTA-ríkin hafa nú gert 35 fríverslunarsamninga við 49 ríki eða ríkjasambönd utan Evrópusambandsins.

Hægt er að kynna sér samninginn betur á vefsíðu EFTA.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta