Fæðingarstyrkur og lágmarksgreiðsla fæðingarorlofs hækka um 30.000 krónur
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér að fæðingarstyrkur námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar hækkar um 30.000 kr. Lágmarksgreiðsla fæðingarorlofs hækkar um sömu upphæð. Hækkanirnar koma strax til framkvæmda og eiga við um greiðslur fyrir júlí sem greiddar eru um næstu mánaðarmót.
Hækkanirnar koma í kjölfar frumvarps félags- og húsnæðismálaráðherra sem samþykkt var á Alþingi á mánudag og varðar fæðingar- og foreldraorlof. Samkvæmt lögunum hefur ráðherra nú heimild til að breyta fjárhæðum með reglugerð án þess að þær breytingar miðist við áramót líkt og fyrri reglugerðarheimild gerði kröfu um.
„Ég vildi að hækkunin kæmi strax til framkvæmda og það hefur nú orðið að veruleika. Það er mér hjartans mál að tryggja að efnahagur foreldra hafi ekki áhrif á þau tækifæri sem börn njóta og hér tökum við utan um tekjulægsta hópinn sem oft á í erfiðleikum með að ná endum saman í fæðingarorlofi,“ segir Inga Sæland.
Lágmarksgreiðslur eru greiddar þeim sem eru á vinnumarkaði en hafa lægstu tekjurnar. Fæðingarstyrkur er hins vegar greiddur námsmönnum og þeim sem ekki eru á vinnumarkaði. Sem fyrr segir hækka greiðslur til beggja hópa nú um 30.000 krónur.