Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2025 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra vill þyngja refsingar við ofbeldisbrotum

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sent refsiréttarnefnd bréf þar sem hún fer þess á leit við nefndina að athuga hvort tilefni sé til að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga sem varða líkamsárásir.

Það er staðreynd að ofbeldisbrotum hefur fjölgað á Íslandi síðustu ár. Dómsmálaráðherra telur brýnt að bregðast við þeirri þróun. Hluti af því er að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga, með það fyrir augum að skerpa á skilum milli ákvæða hegningarlaga um líkamsárásir og þyngja refsimörk.

Í dag má skipta hegningarlagaákvæðum í líkamsárás og meiriháttar líkamsárás. Hámarksrefsing fyrir líkamsárás er eins árs fangelsisvist en fyrir meiriháttar er hámarksrefsing 16 ára fangelsi.

„Ofbeldi er meinsemd í íslensku samfélagi. Við þurfum við að bregðast skýrt við auknum ofbeldisbrotum og að refsingar við slíkum brotum endurspegli alvarleika þeirra,“ segir ráðherra. „Við sjáum sambærilega hluti vera að gerast á Norðurlöndunum og þar hafa stjórnvöld brugðist við. Það eru skýr skilaboð gagnvart þessari þróun að þyngja refsiramma fyrir líkamsárásir. Þess vegna hef ég beðið refsiréttarnefnd um að skoða þetta vel og skila mér tillögu til að bregðast við þessari alvarlegu stöðu.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta