Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Barnvænt Ísland – innleiðing barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Barnvænt Ísland er stefna um framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2021–2024. Megintilgangur stefnunnar var að innleiða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, þannig að mannréttindi barna yrðu efld og innleidd með markvissum hætti. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur nú birt greinargerð um innleiðinguna og stöðu aðgerða.

Stefnan var samþykkt á Alþingi í júní 2021 og markaði fyrstu heildstæðu innleiðingaráætlunina fyrir barnasáttmálann hjá stjórnvöldum á Íslandi. Stefnan var unnin í samstarfi við stýrihóp Stjórnarráðsins um málefni barna og að henni komu einnig opinberir aðilar og félagasamtök. Við mótun stefnunnar var áhersla lögð á að hagsmunir barna væru ávallt hafðir í fyrirrúmi og að við stefnumótun í málaflokknum væri mótuð heildarsýn, sem tæki mið af sjónarhorni allra aðila sem koma að málefnum barna og fjölskyldna, ekki síst barnanna sjálfra.

Þingsályktunartillagan innihélt stefnu og aðgerðaráætlun með 27 aðgerðum sem sneru að eflingu réttinda barna hér á landi. Ráðist var í aðgerðir þvert á ráðuneyti í samstarfi við fjölbreytta aðila sem búa yfir viðamikilli reynslu og þekkingu á málaflokknum, svo sem Barnaheill, umboðsmann barna, UNICEF á Íslandi og fleiri. Lögð var áhersla á að innleiða verklag og ferla sem tryggja jafnræði og markvissa þátttöku barna og ungmenna innan stjórnsýslunnar, aukið samstarf opinberra aðila og hagsmunamat út frá réttindum og velferð barna. Alls er nú 85% aðgerðanna lokið eða í farvegi. Staðan miðast við maí 2025.

Dæmi um aðgerðir sem ráðist var í var svokallað mat á hagsmunum barna en mikilvægur hluti af innleiðingu barnasáttmálans er að mat sé lagt á áhrif á börn við alla ákvarðanatöku líkt og felst í 3. gr. barnasáttmálans. Markmið með slíku mati er að stjórnvöld hugi markvisst að því hvaða áhrif ákvarðanir þeirra hafi á börn og réttindi þeirra. Birtur var leiðarvísir og sniðmát á vef Stjórnarráðsins í nóvember 2024 sem ætlað er að einfalda framkvæmd matsins. Notkun mats á áhrifum á börn á að stuðla að áframhaldandi innleiðingu barnasáttmálans í lagaumhverfinu hér á landi. Leiðarvísirinn var unninn í samvinnu við umboðsmann barna og er unnið að nánari innleiðingu og notkun matsins innan Stjórnarráðsins.

Þá voru allnokkrir lagabálkar endurskoðaðir á gildistíma stefnunnar út frá ákvæðum barnasáttmálans og sérstök áhersla lögð á snemmtækan stuðning, þátttöku barna og það sem er barni fyrir bestu, sbr. 3. og 12. gr. barnasáttmálans. Sem dæmi má nefna endurskoðun laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla þar sem gerðar voru ýmsar breytingar sem höfðu það að markmiði að tryggja aukna aðkomu barna og ungmenna að stefnumótun í samræmi við ákvæði barnasáttmálans og tilmæli barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna til íslenskra stjórnvalda þar að lútandi.

Einnig ber að nefna góðan árangur á öðrum sviðum sem stefnan tók til, til dæmis verkefnin Barnvæn sveitarfélög og Réttindaskóli og -frístund undir stjórn UNICEF, aukið fræðsluefni um innleiðingu barnasáttmálans sem umboðsmaður barna vann og samráðsvettvang fulltrúa ráðherra (stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna) sem var lögfestur í lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Þá var tekið í notkun mælaborð með reglulega uppfærðum og aðgengilegum tölfræðigögnum um farsæld barna. Auk þess náðist góður árangur í alþjóðlegu samstarfi þar sem Ísland hefur markvisst beitt sér fyrir mannréttindum barna á alþjóðlegum vettvangi á gildistíma stefnunnar og átti frumkvæði að nýútgefnum ISO-alþjóðastaðli um þjónustu fyrir börn sem sætt hafa ofbeldi sem byggir á starfsemi hið íslenska Barnahúss.

Innleiðing barnasáttmálans er viðvarandi verkefni stjórnvalda og mikilvægt að hún endurspeglist í framkvæmd með endurmati á verklagi, lögum og reglugerðum með réttindi barna að leiðarljósi.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá desember 2024 er meðal annars lögð áhersla á jöfnuð og snemmtækan stuðning í málefnum barna. Vinna er hafin við gerð stefnu og aðgerðaráætlunar um farsæld barna hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu og verða þar lagðar til aðgerðir sem tryggja áframhaldandi innleiðingu barnasáttmálans á Íslandi.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta