Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2025 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra undirritar viljayfirlýsingu um líkbrennslu

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur - mynd

Dómsmálaráðherra og Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um fjárframlag til uppbyggingar nýrrar líkbrennslu í Gufuneskirkjugarði. Kirkjugarðar Reykjavíkur eru í senn reknir sem sjálfseignarstofnun og almannaheillafélag, sem starfar meðal annars að líkbrennslu á grundvelli samkomulags við íslenska ríkið.

Um er að ræða mikilvægt skref til að leysa þann bráðavanda sem legið hefur fyrir vegna athugasemda heilbrigðiseftirlits í garð starfsemi líkbrennslunnar í Fossvogi. Samhliða verður til staðar umhverfisvæn og gjaldfrjáls líkbrennsluþjónusta á Íslandi.

Með viljayfirlýsingunni hefur því með varanlegum hætti verið tryggt að mikilvægir innviðir samfélagsins séu nútímavæddir og þjóni hlutverki sínu.

Bráðavandi - aðkallandi þörf að tryggja rekstur

Líkbrennsla hefur verið starfrækt í Fossvogi af Kirkjugörðum Reykjavíkur frá árinu 1948 og er hún fyrsta og eina líkbrennsla landsins.

Líkbrennslan í Fossvogi stenst ekki lengur nútímakröfur um mengunarvarnir og hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemina. Fyrirséð var að afköst brennslunnar gætu dregist verulega saman og þörfin fyrir líkgeymslur hefði aukist. Ef ekkert hefði verið að gert hefði geta skapast verulegur fráflæðisvandi frá heilbrigðisstofnunum.

Þessu til viðbótar hefur þörf fyrir þjónustuna aukist verulega á síðustu árum og fyrirsjáanlegt að aukningin verður enn meiri á komandi árum með áframhaldandi fólksfjölgun hér á landi og aukinni eftirspurn.

Vandinn leystur með viljayfirlýsingu

Með viljayfirlýsingunni leggur ríkissjóður fram 80 milljónir króna árlega í tólf ár til að standa undir stofnkostnaði nýrrar líkbrennslu.

Framlagið mun nýtast til kaupa á tveimur nýjum líkbrennsluofnum og viðbyggingu við húsnæði Kirkjugarða Reykjavíkur í Gufunesi. Búnaður og ofnar verða í fremstu röð hvað varðar umhverfisvernd og mengunarvarnir.

Gert er ráð fyrir að ný líkbrennsla hefji starfsemi haustið 2026.

„Ég er ánægð að þessi vandi sé leystur farsællega eftir margra ára óvissu. Með viljayfirlýsingunni eru tvær flugur slegnar í einu höggi; annars vegar bráðavandinn sem blasti við í málinu og hins vegar erum við að nútímavæða mikilvæga innviði á umhverfisvænan hátt fyrir almenning.“, sagði Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta