Ráðherra leggur til að vindorkukosturinn Garpsdalur fari í orkunýtingarflokk
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, leggur til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Tillaga ráðherra hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda en með henni er lögð til breyting á tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar sem lagði til við ráðherra í maí síðastliðnum að allir 10 vindorkukostirnir í 5. áfanga rammaáætlunar færu í biðflokk. Er þetta í fyrsta skipti sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk.
Í rökstuðningi ráðherra er bent á að virkjunarkosturinn hafi fengið jákvæðari umsagnir frá faghópum rammaáætlunar en aðrir kostir sem voru til umfjöllunar, bæði hvað varðar áhrif á náttúru og samfélag, og að meiri sátt virðist ríkja um kostinn í nærsamfélaginu en um aðra vindorkukosti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins er lögð áhersla á aukna orkuöflun í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar um allt land. Að mati ráðherra eiga þeir virkjunarkostir að ganga fyrir sem eru í senn hagkvæmir og fela í sér minnstu umhverfisáhrifin.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
„Við tökum eitt skref í einu í vindorkunni og gefum ekki grænt ljós á frekari framkvæmdir fyrr en skýr rammi og lagaumgjörð liggur fyrir. Þar verður lögð áhersla á að verja náttúruverðmætin sem við eigum hérna saman og tryggja sátt og samstöðu í nærsamfélaginu.
Garpsdalur í Reykhólahreppi er sá vindorkukostur sem hefur fengið jákvæðustu umsögnina frá faghópum rammaáætlunar, bæði hvað varðar áhrif á náttúru og samfélag. Ég hef ákveðið að setja af stað samráðsferli um að Garpsdalur fari í orkunýtingarflokk rammaáætlunar og stefni að því að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis samhliða kynningu á vindorkustefnu og breyttri lagaumgjörð um vindorkunýtingu á næsta löggjafarþingi.
Aðrir vindorkukostir í tillögum verkefnisstjórnarinnar munu fá áframhaldandi umfjöllun hjá nýrri verkefnisstjórn rammaáætlunar sem skipuð var 12. júní 2025, en í skipunarbréfi hennar kemur fram að við tillögugerð skuli tekið mið af markmiðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um aukna raforkuöflun í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar um allt land.“
Tillaga um flokkun virkjunarkostsins Garpsdal í nýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar