Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Viðamikill undirbúningur vegna samþætts sérfræðimats: Skýrsla ráðherra til Alþingis

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram skýrslu á Alþingi um innleiðingu og undirbúning samþætts sérfræðimats. Núgildandi læknisfræðilegt örorkumat var innleitt hér á landi árið 1999 og hefur staðið óbreytt síðan en með nýju örorku- og endurhæfingarkerfi verður því hætt og í staðinn tekið upp samþætt sérfræðimat. Breytingarnar eiga sér stað þann 1. september nk. þegar nýja kerfið tekur gildi.

Í inngangsorðum skýrslunnar leggur ráðherra áherslu á að samþætta sérfræðimatið feli í sér nýja og tímabæra hugsun.

„Núgildandi matskerfi byggir eingöngu á læknisfræðilegum forsendum en með nýja matinu verður horft heildrænt á einstaklinginn og einnig litið til sálfræðilegra og félagslegra þátta. Megináherslan er á færni viðkomandi í samspili við umhverfi og aðstæður. Hugsunin að baki snýr að valdeflingu og að styðja fólk til að nýta sem best alla sína getu,“ segir ráðherra. „Fram undan eru sannarlega spennandi tímar með nýrri hugsun og stórum skrefum fyrir fatlað fólk og öryrkja á Íslandi.“

Umfangsmikil vinna við útfærsluna

Í skýrslunni er gerð grein fyrir vinnu starfshóps sem þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði í maí 2024 til að útfæra samþætta sérfræðimatið. Vinnuhópur á vegum Tryggingastofnunar sem í voru sérfræðingar frá Tryggingastofnun, VIRK starfsendurhæfingarsjóði og Vinnumálastofnun skipulagði vinnu starfshópsins. Með skýrslunni fylgja tveir viðaukar sem starfshópurinn vann, annars vegar um þau atriði sem líta skal til við samþætt sérfræðimat og hins vegar leiðbeinandi viðmið um áhrif þeirra atriða á færnivanda.

Talið var brýnt að í starfshópnum væru fagaðilar sem byggju yfir sérþekkingu og reynslu sem taka þyrfti mið af við mótun á nýju heildrænu matskerfi. Starfshópurinn var því samansettur af fulltrúum þeirra heilbrigðisstétta sem hafa aðkomu að heilbrigðisþjónustu eða endurhæfingu, fulltrúum frá heilbrigðis- og velferðarstofnum, háskólum, hagsmunaaðilum, lífeyrissjóðum og heilbrigðisráðuneytinu.

Færni fólks í samspili við samfélagið sem það býr í

Samkvæmt lögunum sem Alþingi samþykkti síðastliðið sumar um endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga skal samþætta sérfræðimatið byggja á hugmyndafræði sem liggur að baki ICF-flokkunarkerfinu. Það er alþjóðlegt flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu sem var þróað af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO. Niðurstöðurnar skulu segja til um getu viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði.

Þegar sú geta er metin í samþættu sérfræðimati verður auk heilsufarsþátta að líta til færni til athafna og þátttöku, umhverfisþátta og persónubundinna þátta.

„Færni einstaklingsins er skoðuð út frá því samfélagi sem hann býr í, án tillits til þess hvað olli skerðingunni sem hann býr við, hömlunum við athafnir eða takmörkunum á þátttöku. Flokkunarkerfið gerir notendum þess kleift að lýsa samspili ólíkra þátta markvisst og gagnkvæmum áhrifum þeirra. Samkvæmt skilgreiningu í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er fötlun enda afsprengi samspils milli fólks með skerðingar annars vegar og umhverfis og viðhorfa hins vegar sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku þess til jafns við aðra,“ segir í skýrslunni.

Prófanir á matinu hafa farið fram hjá Tryggingastofnun og sömuleiðis er áfram unnið að útfærslu á nýja matskerfinu og umsóknum um örorku. Einnig hafa verið útbúnar handbækur fyrir fagaðila um nýja kerfið og boðið uppá námskeið fyrir fagaðila hjá TR.

Vert er að undirstrika að Tryggingastofnun verður heimilt að víkja frá skilyrðum um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta