Umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust fjórar umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Umsækjendur um embætti skólameistara:
- Anne Héléna Clara Herzog
- Azoya Brutus Akumbobe
- Birgir Jónsson
Embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 24. júní síðastliðinn, með umsóknarfresti til og með 8. júlí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Skipað verður í embættið frá 1. ágúst næstkomandi.