Tilboðsmarkaður 1. september 2025 með greiðslumark í mjólk
Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. september næstkomandi.
Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega.
Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á Afurð.is Opnað hefur verið fyrir tilboð. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar um markaðinn má finna á Afurð.is og vef atvinnuvegaráðuneytisins