Ársskýrsla GRÓ fyrir árið 2024 komin út
Alls útskrifuðust 97 sérfræðingar úr þjálfunarnámi á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu á árinu 2024. Í lok árs höfðu 1.767 sérfræðingar lokið fimm til sex mánaða námi í skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum GRÓ, það er Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum. GRÓ styrkir einnig útskrifaða nemendur til framhaldsnáms og luku sjö styrkþegar slíku námi á árinu, tveir doktorsprófi og fimm meistaragráðu. Einnig voru ýmis stutt námskeið haldin í samstarfslöndunum, sem rúmlega 400 manns sóttu, og nýju netnámskeiði var hleypt af stokkunum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu GRÓ sem nú er komin út. Þar er greint frá starfi skólanna fjögurra, sem og því sem var efst á baugi í starfi GRÓ á árinu. GRÓ starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
„Skólarnir sem starfræktir eru á vegum GRÓ hafa frá stofnun verið órjúfanlegur hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Rætur þeirra ná aftur til áttunda áratugar síðustu aldar, þegar Ísland var að stíga sín fyrstu skref sem veitandi og samstarfsríki í þróunarsamvinnu eftir að hafa sjálft þegið þróunaraðstoð örfáum árum áður. Ísland var eitt sinn á meðal fátækustu ríkja Evrópu og byggir sú velsæld sem tekist hefur að skapa hér að miklu leyti á framþróun á þeim sviðum sem skólarnir starfa á. Reynsla okkar og sérþekking getur þannig skipt miklu máli til að efla sjálfbæra þróun í öðrum löndum og stuðlað að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Í skýrslunni er jafnframt að finna viðauka um starf hvers og eins skóla sem og sögur af starfi nemenda eftir útskrift og dæmi um hvernig þeir hafa nýtt þjálfunina til góðs í heimalöndum sínum. Þá eru upplýsingar um starf ársins færðar inn í árangursramma þar sem umfang starfseminnar er sett fram á samræmdan hátt.
Meðal helstu verkefna sem GRÓ vann að árið 2024 var að móta stefnu um hvernig megi auka stuðning við nemendur eftir útskrift og hvetja útskrifaða nemendur til stofnunar samtaka í heimalöndum sínum. Þannig geta nemendur unnið saman að því að miðla þekkingu sinni og aflað sér nýrrar þekkingar, auk þess að efla tengsl þeirra við íslensk sendiráð í samstarfslöndunum og svæðisskrifstofur UNESCO.
Viðamikil óháð úttekt fyrirtækisins GOPA, sem utanríkisráðuneytið lét gera árið 2024, staðfesti góðan árangur af starfinu. Helsta niðurstaða úttektarinnar, sem tók til tímabilsins 2018-2023, var að skólarnir hafi með skilvirkum hætti stutt við ungt fagfólk og samstarfsstofnanir í 76 ríkjum á tímabilinu og þannig náð tilætluðum árangri í að gera útskrifuðum nemendum kleift að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Þá hafi þjálfun sem nemendur hlutu skapað grundvöll fyrir þá til að tileinka sér nýja þekkingu, hæfni og aðferðir.