Hoppa yfir valmynd
5. ágúst 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland skilar​ fjórðu skýrslu sinni til Árósasamningsins

Kerlingafjöll. - myndHugi Ólafsson

Ísland skilaði nýverið fjórðu skýrslu sinni til Árósasamningsins um stöðu innleiðingar samningsins hér á landiUm er að ræða uppfærslu á þriðju skýrslu Íslands frá árinu 2021. Aðildarríkjum Samningsins ber að skila slíkum skýrslum til skrifstofu samningsins á fjögurra ára fresti. Drög að skýrslunni voru til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda dagana 2. -30. júní og var horft til þeirra tillagna sem þar bárust við gerð lokaútgáfu skýrslunnar.

Aðildarríkjaráðstefna Árósasamningsins um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum verður haldin í áttunda skipti dagana 17. til 19nóvember nk.

Ísland fullgilti Árósasamninginn í október 2011. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Árósasamningurinn kveður m.a. á um að almenningur hafi aðgang að upplýsingum um umhverfismál, eigi rétt til þátttöku í undirbúningi að ákvörðunum sem snerta umhverfið og réttláta málsmeðferð í málum sem varða umhverfið.

Ráðstefna aðildarríkja er haldin á fjögurra ára fresti og eru þar teknar ákvarðanir um framkvæmd samningsins, svo sem þróunaráætlun og vinnuáætlun. Ísland á fulltrúa í vinnuhópi, sem ásamt skrifstofu samningsins, sér um framkvæmd samningsins á milli aðildarríkjaráðstefna. Auk þess eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð. Þá er rekin sérstök nefnd um framfylgni (Compliance Committee) sem fylgist með framkvæmd samningsins í aðildarríkjum hans.

Nánari upplýsingar um aðildarríkjaþingið 

Fjórða skýrsla íslands um stöðu innleiðingar Árósarsamningsins hér á landi

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta