Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samráð um að Hamarsvirkjun fari í biðflokk

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnir, sem staðgengill umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, tillögu í Samráðsgátt stjórnvalda um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Verkefnisstjórn verndar- og orkunýtingaráætlunar skilaði 10. mars 2025 umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tillögu að flokkun fimm nýrra virkjunarkosta. Um er að ræða virkjunarkostina Bolaöldu, Tröllárvirkjun, Hvanneyrardalsvirkjun, Skúfnavatnavirkjun og Hamarsvirkjun. Verkefnastjórnin leggur til að Bolaalda, ásamt annað hvort Skúfnavatnavirkjun eða Tröllárvirkjun, verði flokkuð í orkunýtingarflokk áætlunarinnar en seinni virkjanakostirnir tveir eru innan sama vatnasviðs. Þá verði Hvanneyrardalsvirkjun flokkuð í biðflokk áætlunarinnar og að Hamarsvirkjun verði flokkuð í verndarflokk áætlunarinnar.

13. mars ákvað Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að víkja sæti sem umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra við meðferð málsins vegna tengsla sinna við einn af framkvæmdaraðilum og var Logi Einarssyni, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, skipaður ráðherra í málinu.

Settur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að setja breytingu á tillögu verkefnisstjórnar í samráðferli þess efnis að Hamarsvirkjun verði flokkuð í biðflokk áætlunarinnar. Ekki er lögð til breyting á tillögum verkefnisstjórnar á flokkun hinna virkjanakostanna. Í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun er kveðið á um að ráðherra taki tillögu verkefnisstjórnar til skoðunar, en verkefnisstjórnin fer með ráðgefandi hlutverk gagnvart ráðherra.  Leggi ráðherra hins vegar til  breytingar á tillögu verkefnisstjórnar skuli leita umsagna og kynna breytingarnar almenningi áður en tillagan er lögð fram á Alþingi, sem fer með endanlegt ákvörðunarvald um flokkun virkjunarkosta.

Af umsögnum umsagnaraðila við tillögu verkefnisstjórnar má sjá að sveitarfélög á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk og vísa m.a. til þess að raforkukerfið á Austurlandi sé veikburða, skortur sé á framboði á raforku á svæðinu og slíkt hamli atvinnuuppbyggingu. Þá hefur efnahagslegur ávinningur virkjunarkostsins verið metinn nokkuð jákvæður. Einnig hafa framkvæmdir við stór og hagkvæm verkefni tafist verulega og ríkir óvissa um marga virkjunarkosti vegna jarðhræringa. Hefur í ljósi þessa verið talið sérlega brýnt að  forgangsraða skoðun og frekari rannsóknum á virkjunum sem staðsettar eru utan helstu umbrota- og hamfarasvæða.   

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hyggst leggja fram frumvarp með breytingum á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta málsmeðferð. Jafnframt hefur ráðherra sett í samráðsgátt drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum, þar sem kveðið er á um að stjórnvöld skuli á fjögurra ára fresti leggja fram heildstæða stefnu um öflun raforku. Í þeirri stefnu verða skilgreind töluleg markmið um aukna raforkuframleiðslu, sem verða höfð til hliðsjónar við gerð verndar- og orkunýtingaráætlunar hverju sinni.

Gert er ráð fyrir að tillaga til þingsályktunar um breytingu á verndar- og orkunýtingaráætlun verði lögð fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi haustið 2025.

Tillaga um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta