Samstarfsyfirlýsing tengd mönnun heilbrigðisþjónustu í umdæmi HVE
Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) undirrituðu í liðinni viku yfirlýsingu um samstarf sem miðar að því að laða að aukinn mannauð og gera starfsstöðvar HVE og búsetu á Vesturlandi að eftirsóknarverðum valkosti fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið á stuttum fundi þessara aðila við undirritunina sem fram fór í Stykkishólmi. Hún segist viss um að samstarf sem þetta sé líklegt til að skila árangri fyrir byggðir og búsetu fólks á landsbyggðinni.
Í tilkynningu á vef HVE kemur fram að verkefnið sé framhald af góðu sem SSV og HVE hafa átt undanfarin ár og hófst við undirbúning Velferðarstefnu Vesturlands árið 2018 og síðan verkefni í tengslum við Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024. Mikilvægt sé að heilbrigðisstofnanir, sveitarstjórnir og stjórnvöld eigi í góðu samstarfi og vinni saman að velferð íbúanna.
Alma segir afar ánægjulegt að HVE og SSV hafi einsett sér að taka höndum saman um að laða að heilbrigðisstarfsmenn til starfsstöðva HVE: „Ég heimsótti þær nokkrar fyrir skömmu og sé að þar er unnið markvisst að því að byggja upp eftirsóknarverða vinnustaði með vinnuumhverfi, gæði þjónustu og öryggi í öndvegi. HVE er jafnframt virkur þátttakandi í menntun heilbrigðisstarfsfólks. Sveitarfélögin geta stutt við með aðgengi og upplýsingum er varða leikskóla, frístund barna, húsnæði og atvinnu fyrir maka. Það hallar á landsbyggðina hvað varðar aðgengi að ýmissi heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisráðuneytið mun styðja við bætta mönnun og aukið aðgengi að þjónustu með margvíslegum hætti; endurbótum á húsnæði og tækjabúnaði, stuðningi við fjarheilbrigðisþjónustu, eflingu náms og fleira. Sérstaklega er til skoðunar hvernig fá megi starfsfólk til svæða þar sem þörfin er mest. Ég bind vonir við að fleiri heilbrigðisstofnanir og svæðissamtök sveitarfélaga fylgi fordæmi HVE og SSV, því ég er viss um að samstarf sem þetta er líklegt til að skila árangri fyrir byggðir og búsetu fólks á landsbyggðinni.“
Markmið verkefnisins er:
Að tryggja að allir íbúar á Vesturlandi hafi gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu og skilgreindri sérfræðingsþjónustu.
Að taka höndum saman og vinna að því að laða vel menntað og hæfileikaríkt starfsfólk til starfa á öllum starfsstöðvum HVE á Vesturlandi.
Að nýta ívilnanir Menntasjóðs til þess að laða vel menntað og hæfileikaríkt starfsfólk til starfa á starfsstöðvum HVE á Vesturlandi þar sem ívilnanir eru í gildi.
Hlutverk HVE er:
- Að allar starfsstöðvar HVE séu eftirsóknarverður vinnustaður.
- Að HVE tryggi gott vinnuumhverfi og góðan aðbúnað starfsfólks og þjónustuþega á öllum starfsstöðvum.
- Að HVE tryggi íbúum heilbrigðisþjónustu með gæði og öryggi í fyrirrúmi.
- Að HVE sé virkur þátttakandi í menntun heilbrigðisstarfsfólks.
Hlutverk sveitarfélaga og SSV er:
- Að tryggja aðgengi að leikskólum og frístund barna á grunnskólaaldri.
- Að veita upplýsingar um stöðu á vinnumarkaði sem nýst geta maka og aðgengi að samvinnurýmum.
- Að veita upplýsingar um þjónustu í sveitarfélaginu, helstu tækifæri til afþreyingar og stöðu á húsnæðismarkaði.
- Að vinna markvisst að því að auka aðdráttarafl sveitarfélaganna.