Umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust átta umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.
Umsækjendur um embætti skólameistara:
- Anne Héléna Clara Herzog
- Árdís Erna Halldórsdóttir
- Finnur Ingi Jónsson
- Guðjón Ragnar Jónasson
- Herdís Ingólfsdóttir Waage
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Örn Ebenezersson
- Vera Sólveig Ólafsdóttir
Embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 24. júní síðastliðinn, með framlengdum umsóknarfresti til og með 6. ágúst. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Skipað verður í embættið frá 1. nóvember næstkomandi.