Hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta 1. september 2025 vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér að frítekjumörk húsnæðisbóta hækka frá og með 1. september nk. Hækkunin er gerð vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu sem taka gildi sama dag.
„Örorkulífeyrisgreiðslur munu almennt hækka þegar nýja kerfið tekur gildi. Til að koma í veg fyrir að lífeyrisþegar lendi í því að húsnæðisbætur þeirra skerðist vegna hækkunarinnar var nauðsynlegt að hækka frítekjumörk húsnæðisbótanna. Það hef ég nú gert og reglugerðin tekur gildi strax um mánaðarmótin,“ segir ráðherra.
Eftir breytingarnar verða frítekjumörk þess sem býr einn 5.977.276 kr. miðað við árstekjur. Frítekjumörk fjölmennari heimila taka mið af svokölluðum stuðlum húsnæðisbóta sem eru eftirfarandi:
Fjöldi heimilismanna |
Stuðull |
1 |
1 |
2 |
1,33 |
3 |
1,55 |
4 |
1,68 |
5 |
1,82 |
6 eða fleiri |
1,96 |
Í töflunni hér að neðan sjást frítekjumörkin miðað við árstekjur. Frítekjumörkin eru margfeldi af frítekjumarki þess sem býr einn og stuðlunum í töflunni hér að ofan:
Fjöldi heimilismanna |
Frítekjumörk m.v. árstekjur |
1 |
5.977.276kr. |
2 |
7.949.777 kr. |
3 |
9.264.778 kr. |
4 |
10.041.824 kr. |
5 |
10.878.642 kr. |
6 eða fleiri |
11.715.461 kr. |
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.