Ráðherra staðfestir stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Stórurð og Dyrfjöll
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæði norðan Dyrfjalla og náttúruvættið Stórurð.
Í stjórnunar- og verndaráætlun er mörkuð stefna um hvernig tryggja megi vernd náttúruminja svæðisins og viðhalda verndargildi þess í sátt við nærsamfélag og aðra hagaðila.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Dyrfjöll og Stórurð geyma einstakar jarðminjar, elstu eldstöðvar Austfjarða, og mikilfenglegt landslag sem skipar sérstakan sess í vitund þjóðarinnar. Við friðlýsingu svæðisins var lögð áhersla á varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni, mikilvægra vistkerfa og búsvæða fugla, en svæðið er einnig vinsæll áfangastaður fyrir ferðamenn. Staðfesting á stjórnunar- og verndaráætlunar svæðisins styrkir enn frekar vernd og sjálfbæra nýtingu þess og þetta er því mjög ánægjulegt skref.“
Stórurð
Svæðið norðan Dyrfjalla var friðlýst í júlí 2021 sem landslagsverndarsvæði og Stórurð, sem er innan landslagaverndarsvæðisins, var friðlýst sérstaklega sem náttúruvætti og gilda því aðrar reglur þar. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda og varðveita sérstæðar jarðminjar og landslag sem er sérstætt á landsvísu vegna fagurfræðilegs gildis. Friðlýsingunni er einnig ætlað að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni svæðisins með verndun vistkerfa, þ.m.t. mikilvægt fuglasvæði norðan Selfljóts, sem og að stuðla að því að nýting svæðisins fari fram með þeim hætti að ekki sé gengið á gæði landsins.