Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Niðurstöður rannsóknar á stöðu kvenna með örorkulífeyri

Tryggingastofnun hélt á dögunum málþing um rannsókn á bakgrunni og stöðu kvenna 50-66 ára með örorkulífeyri. Á málþinginu voru kynntar niðurstöður skýrslu Félagsvísindastofnunar sem unnin var að beiðni Tryggingastofnunar (TR) í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, velferðarvaktina og Vinnueftirlitið. 

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar:

Einhleypar með ábyrgð á uppeldi barna 

Hærra hlutfall kvenna með örorkulífeyri eru einhleypar, hafa skilið eða slitið sambúð og eru einstætt foreldri en konur í samanburðarhópi og karlar með örorkulífeyri. Þessi hópur er líklegri til að eiga börn með sem höfðu verið langveik eða greind  með röskun eða skerðingu en samanburðrahópurinn og þær sinntu umönnun barnanna alfarið mun oftar og það sama átti við þegar borið er saman við karla á sama aldri með örorkulífeyrisgreiðslur. 

Í vaktavinnu og krefjandi aðstæður í vinnu 

Helstu niðurstöður sýna að konur með örorkulífeyrisgreiðslur hafa á starfsferli sínum verið í vaktavinnu, gjarnan unnið í óþægilegum líkamsstellingum og notað endurteknar hreyfingar í vinnu auk þess að þurfa að fást við krefjandi félagslega eða tilfinningalega erfiðar aðstæður í vinnu í meira mæli en konur sem ekki eru með örorkulífeyrisgreiðslur. 

Erfiðar fjárhagsaðstæður 

Konur með örokulífeyrisgreiðslur voru líklegri til að hafa verið sagt upp leiguhúsnæði eða misst eigið íbúðarhúsnæði. Þá sögðu mun fleiri konur í rannsóknarhópi en konur í samanburðarhópi að það hefði reynst frekar eða mjög erfitt að ná endum saman fjárhagslega fyrir fjölskylduna áður en þær fóru fyrst að finna fyrir heilsufarsvanda samanborið við sl. tíu ár hjá samanburðarhópnum. 

Líklegri til að hafa orðið fyrir ofbeldi 

Konur með örorkulífeyrisgreiðslur eru líklegri til að hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi, bæði sem barn og fullorðin, en konur í samanburðarhópi. Jafnframt höfðu þær oftar orðið fyrir einelti eða andlegu ofbeldi.  

Framkvæmd og aðferðafræði 

Rannsókninni sem skýrslan byggir á var ætlað að afla aukinnar þekkingar á því hvaða ástæður gætu legið að baki háu hlutfalli kvenna á aldrinum 50–66 ára sem fá örorkulífeyri. Aðferðafræði rannsóknarinnar byggir á samanburði á aðstæðum og reynslu fólks eftir því hvort um sé að ræða karl eða konu sem fær örorkulífeyri annars vegar og hins vegar með samanburði á konum sem fá örorkulífeyri og úrtaki kvenna á sama aldri úr netpanel Félagsvísindastofnunar, svokallaður samanburðarhópur.

Fjórða hver kona á Íslandi öryrki í sumum árgöngum eftir sextugt

Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR, fjallaði á málþinginu um tölfræði almannatrygginga og þar kom fram að konur eru 61% þeirra sem eru með örorkulífeyri og að á aldursbilinu 60-66 ára eru 33% allra kvenna með örorku. Hlutfall kvenna eftir 55 ára aldur með örorkulífeyri almannatrygginga sem hlutfall kvenna búsettum á Íslandi er í sumum aldursbilum allt að 26%. Þetta þýðir að í sumum árgöngum eftir sextugt er fjórða hver kona á Íslandi öryrki. Þá er 60% allra kvenna með örorkulífeyri eldri en 50 ára. Stærsti hópurinn með örorkulífeyri sem fer af vinnumarkaði eru konur yfir fimmtugt.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, benti í ávarpi sínu á tengingu niðurstaðna rannsóknarinnar varðandi álag á konum á vinnumarkaði, umönnunarábyrgð og kynbundið ofbeldi við áherslur kvennaársins þar sem krafist er úrbóta á þessum atriðum. Í rannsókninni megi glögglega sjá hver áhrif af erfiðum aðstæðum á vinnumarkaði og heima fyrir eru á konur sem geti svo leitt til þess að þær fari mun frekar á örorkulífeyri en karlar. 

Í ávarpi sínu ræddi forstjóri Vinnueftirlitsins, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir,um að niðurstöður rannsóknarinnar bendi til að víða sé pottur brotinn á vinnustöðum svarenda, þar sem um og yfir 33% höfðu átt í erfiðum samskiptum eða orðið fyrir andlegu ofbeldi á vinnustað. Hún vakti m.a. athygli á vitundarvakningu sem Vinnueftirlitið hefur staðið fyrir í samstarfi við félags – og húsnæðismálaráðuneytið. 

Af málþinginu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta