Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Útlit fyrir 2,5% samdrátt milli ára í losun frá vegasamgöngum

Jökulsárlón - myndHugi Ólafsson

Samkvæmt bráðabirgðatölum um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi árið 2024 sem Umhverfis- og orkustofnun hefur skilað Evrópusambandinu jókst samfélagslosun um 2% milli áranna 2023 og 2024, en hefur dregist sama um 7,9% frá 2005. Athygli vekur að losun frá vegasamgöngum dróst saman um 2,5% milli 2023 og 2024, auk þess að samdráttur varð í losun frá kælimiðlum og vegna urðunar úrgangs. Sjá má samhengi milli þeirra aðgerða sem komist hafa til framkvæmda í loftslagsmálum undanfarin ár, s.s. styrkveitingar og ívilnanir til rafbílakaupa, tolla á innflutning F-gasa og löggjöf um betri flokkun og minni urðun úrgangs, og samdráttar í losun. Gera má ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í þessum flokkum næstu ár. Losun jókst hins vegar t.d. frá jarðvarmavirkjunum, vegna brennslu olíu til framleiðslu varaafls og vegna fiskiskipa. Ekki er útilokað að aukningin frá jarðvarmavirkjunum sé til komin vegna jarðhræringa á Reykjanesi.

Minni losun frá landi vegna umbóta í gagnaöflun
Losun frá landi hefur aukist um innan við 1% frá fyrra ári. Heildarlosun vegna landnotkunar er skráð lægri nú en hún hefur áður verið. Það má rekja til umbóta í gagnaöflun og rannsóknum á losun frá landi og bindingu kolefnis vegna landnotkunar, en við slíkar breytingar er losun fyrri ára endurreiknuð. Stjórnvöld gáfu út metnaðarfulla umbótaáætlun um bætingu gagna vegna losunarbókhalds frá landi árið 2020. Uppfærð áætlun um áframhaldandi umbætur í mati á losun frá landi er væntanleg fljótlega.

Loftslagsaðgerðir skipta heiminn, þjóðarbúið og samfélagið miklu máli.
Með kolefnisbindingu og samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda tekur Ísland ekki einungis þátt alþjóðlegum markmiðum um að sporna við hlýnun jarðar. Vel heppnaðar loftslagsaðgerðir minnka jafnframt líkur á því að Ísland verði að kaupa losunarheimildir í uppgjöri loftslagsmarkmiða í samstarfi sínu við Evrópusambandið og með góðum árangri loftslagsaðgerða getur Ísland búið til slíkar heimildir til sölu innan evrópska uppgjörsins. Fjárhagslegir hvatar, ekki síður en umhverfislegir, standa til þess að grípa hraðar til skilvirkari aðgerða. Ástæða er til að auka skilvirkni í stjórnsýslu loftslagsmála, bæta markmiðasetningu og skerpa á ábyrgð ráðherra á því að ná raunverulegum árangri í loftslagsmálum. Að þessu miðar frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til nýrra heildarlaga um loftslagsmál, sem er nú í samráðsgátt stjórnvalda.

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að forgangsröðun aðgerða í loftslagsmálum í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Málið var til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi fyrr í þessum mánuði og mun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynna forgangsaðgerðirnar fljótlega.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta