Vinnuhópur stofnaður um þjónustu við sjúklinga með ME, langvinnt COVID, POTS og skylda sjúkdóma
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið landlækni að setja á fót og leiða vinnuhóp til að fjalla um heilbrigðisþjónustu við sjúklinga með sjúkdómaheilkenni sem á ensku kallast post-acute infection syndromes, skammstafað PAIS. Undir þetta falla meðal annars langvinnt COVID, ME-sjúkdómur og POTS en talsverð skörun getur verið þarna á milli og einkenni geta verið afar fjölbreytt og mismunandi.
Ljóst er að bæta þarf heilbrigðisþjónustu við þennan hóp, m.a. með upplýsingagjöf og vegvísun, fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks, klínískum leiðbeiningum um greiningu og meðferð og skilgreiningu á því hvernig endurhæfingu og eftirfylgd ætti að vera háttað. Liður í vinnu hópsins verður einnig að kanna gögn um algengi þessara sjúkdóma, kortleggja hvaða þjónusta er í boði og hvað vanti og enn fremur hvernig heilbrigðisþjónustu við þennan fjölbreytta hóp verði best fyrir komið. Þá þarf að samræma hugtakanotkun, sjúkdómaheiti og greiningarkóða.
„Það er mikilvægt að fá sem gleggsta mynd af því hve stór sá hópur er sem fellur hér undir, hvaða þjónustu þessir einstaklingar fá og hvað þarf að bæta. Oft glíma þessi sjúklingar við margvísleg einkenni sem gerir greiningu erfiða og meðferð sömuleiðis. Hér er um að ræða hóp sem þarf svo sannarlega á þjónustu og stuðningi að halda og við verðum að finna leiðir til að sinna þessum sjúklingum betur og á markvissari hátt með þverfaglegri þjónustu í heilbrigðiskerfinu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Ráðherra leggur áherslu á að vinnuhópurinn verði skipaður þannig að hann endurspegli sem breiðasta þekkingu á málefnum hópsins með hliðsjón af verkefnunum sem honum eru falin og verði að sjálfsögðu einnig skipaður fulltrúum sjúklinga. Einnig verða fulltrúar frá vísindasamfélaginu en ljóst er bæta þarf þekkingu á þessum sjúkdómum.
Í erindi til Maríu Heimisdóttur landlæknis óskar heilbrigðisráðherra eftir því að hópurinn vinni rösklega og haldi henni upplýstri eftir því sem starfinu vindur fram.