Bein útsending: Tímamót með nýju örorku- og endurhæfingarkerfi
Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi í dag, 1. september, og á fundi kl. 11:00 verður farið yfir umbæturnar sem nýja kerfið hefur í för með sér. Kynningin verður send út í beinu streymi.
- Um er að ræða stærstu breytingar sem gerðar hafa verið á örorku- og endurhæfingarkerfinu undanfarna áratugi. Breytingarnar snerta hátt í 30.000 manns.
- Nýja kerfið er einfaldara, greiðslur hækka, dregið er úr tekjutengingum og fólki gert auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði kjósi það svo.
- Stuðningur er aukinn við fólk í endurhæfingu og áhersla lögð á að hindra að fólk falli milli kerfa og endi með ótímabært örorkumat.
Dagskrá:
Ávarp ráðherra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherraNý hugmyndafræði með nýju kerfi
Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR
Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir, sviðsstjóri örorkusviðs hjá TR
Svanbjörg Berg Sigmarsdóttir, sviðsstjóri endurhæfingarsviðs hjá TR
Aukin atvinnutækifæri
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar
Aukin endurhæfing
Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs
Aukin samvinna
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisinsFundarstjóri:
Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.