Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur
Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. september. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 67 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 16.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 419 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 250 kr./ltr.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 16.
- Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 67.
- Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 8.
- Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 2.
- Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.099.643 lítrar
- Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 2.215.000 lítrar
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.077.643 lítrar að andvirði 269.410.750,- kr.
- Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 14 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
- Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 59 talsins og fá 52% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
Af kauptilboðum eru 4 sem fá úthlutun úr forgangspotti nýliða og fá þeir kaupendur 66 % af eftirspurðu magni í sinn hlut.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.