Hoppa yfir valmynd
1. september 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ríki og sveitarfélög sammælast um stafræna þróun og víðtæka nýtingu gagna í þágu barna 

Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, undirrita samkomulag í mennta- og barnamálaráðuneytinu - mynd

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í víðtækt samstarf um uppbyggingu traustra gagnainnviða og stafræna þróun þvert á stjórnsýslustig. Tilgangurinn er að tryggja sameiginlega yfirsýn varðandi þróun og innleiðingu stafrænna lausna, uppbyggingu gagnainnviða, til öflunar og nýtingu gagna í þágu farsældar barna og aukinna gæða í skóla- og frístundastarfi. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undirrituðu nýverið samkomulag þess efnis. Markmiðið er að ná yfirsýn yfir aðstæður barna og þjónustuþörf þeirra og fjárfestingu í aðgerðum í þágu barna með traustum gögnum og mælanlegum markmiðum, sem varpa ljósi á stöðu og farsæld barna, og nýta til gagnadrifinnar stefnumörkunar. 

Umfang gagnasöfnunarinnar er fordæmalaus og nær til allra þjónustuaðila á vegum hins opinbera þvert á stjórnsýslustig. Með samkomulaginu sammælast aðilar um samstarf um skipulag gagnamála, öflun, geymslu, vinnslu og deilingu gagna frá ólíkum þjónustustofnunum er varðar málefni og velferð barna. Haft verður víðtækt samstarf við lykilaðila og aðila sem starfa í þágu barna, til dæmis háskóla, stofnanir, frjáls félagasamtök og einkaaðila sem vinna að málefnum barna og menntafyrirtækja.

„Það eru gleðitíðindi að ná fram þessum áfanga. Til að framfarir gerist hratt þarf að geta skoðað gögn og ferli og haft yfirsýn, því þurfum við víðtækara samstarf en verið hefur, að ná fólki saman og að allir séu sammála. Við viljum sjá hvar skórinn kreppir til að geta brugðist hratt við og metið inngrip. Samkomulagið markar stórt skref í þessa átt og í sameiginlegri vegferð ríkis og sveitarfélaga í stafrænni þróun, börnum og skólakerfinu til hagsbóta,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.„Málefni barna, þar með talið fræðslumál, eru stærsti málaflokkurinn á vegum sveitarfélaganna. Þetta eru því stór og ánægjuleg skref í samstarfi ríkis og sveitarfélaga við að ná yfirsýn yfir málaflokkinn og styrkja grunnstoðir í gagnainnviðum og stafrænni þróun. Samkomulagið markar mikilvægan áfanga í stafrænum málum ríkis og sveitarfélaga sem munu gagnast okkur við að taka ákvarðanir á faglegum grunni og vonandi verða fleiri slík skref stigin með fleiri ráðuneytum í sameiginlegum málum,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Til að fylgja samkomulaginu eftir verður skipaður sameiginlegur stýrihópur með fulltrúum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og Sambandinu innanborðs. Stýrihópurinn skal gera tillögu að sameiginlegri yfirsýn að framtíð tengingu grunna og samhæfingu tæknilegra staðla og gagnainnviða, ásamt því að forgangsraða upplýsingum sem tengjast börnum og nýtast í stefnumörkun á sviði skólamála og farsældar barna. Formaður hópsins verður Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, ráðgjafi mennta- og barnamálaráðherra um stafræna þróun. Hópurinn mun skila tillögum sínum fyrir 1. febrúar 2026.

Samhliða og til stuðnings vinnu stýrihópsins, verður unnin kortlagning gagna sem opinberir aðilar og stofnanir safna með markvissum hætti og greining á því hvernig þau nýtast eða gætu nýst í þágu barna og hvaða gögn vantar til að fá fram heildarmynd.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta