Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Átta hafa hlotið tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Þema ársins er „Þáttur borgarasamfélagsins í umhverfismálum – verkefni sem virkja almenning í grænum umskiptum“, en með því beina umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs kastljósinu að mikilvægi þess að almenningur taki þátt í grænu umskiptunum.
Verkefnin sem hljóta tilnefningu að þessu sinni eru:
- ALDIN gegn loftslagsvá (hreyfing eldra fólks gegn loftslagsvánni)
- World Saving Hustle
- Minik T. Rosing prófessor
- Trygga Orten – Håll Sverige Rent
- HUGLA
- Euphoria Film AB
- Grønne Nabofællesskaber
- Foreningen Ålands Natur och Miljö
Tilkynnt verður 21. október hver hlýtur verðlaunaféð 300.000 danskar krónur, en verðlaunin verða afhent með athöfn í Stokkhólmi þann 28. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs.
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og er markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Þau eru veitt norrænum fyrirtækjum, samtökum eða einstaklingum sem öðrum til eftirbreytni hefur tekist að samþætta umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar.