Hoppa yfir valmynd
10. maí 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Kynningarfundur um samfélagslegan ávinning af landsátakinu Ísland ljóstengt

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. - mynd

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptasjóður standa að kynningarfundi sem streymt verður á netinu miðvikudaginn 12. maí kl. 13:00-14:00 um einstakan árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið hefur þegar bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins. 

Fundurinn er haldinn í tilefni af úthlutun síðustu styrkja til sveitarfélaga á grundvelli landsátaksins Ísland ljóstengt um ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða. Þá verður kynnt ný skýrsla um samfélagslegan ávinning af Íslandi ljóstengt fyrir dreifbýli landsins. Við hvetjum fólk til að skrá sig á fundinn en þau sem skrá sig fá hlekk á veffundinn sem haldinn er á Teams.

Dagskrá

  • 13:00 – Samfélagslegur ávinningur af verkefninu Ísland ljóstengt
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

  • 13:15 – Ísland ljóstengt – nálgun og umfang
    Páll Jóhann Pálsson, formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs

  • 13:25 – Reynslusögur frá sveitarfélögum
    Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar
    Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar
  • 13:35 – Skýrsla um samfélagsleg áhrif af verkefninu Ísland ljóstengt
    Vífill Karlsson, hagfræðingur
  • Fundarstjóri – Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Streymi og skráning

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum